breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Gagnsæið já, ég virði það ágætlega við hv. þingmann. Ég veit alveg hvað ég er að tala um. Þetta er túlkun fjármála- og efnahagsráðuneytisins á almannatryggingalögum, á þessum tvöfalda lás í almannatryggingalögum. Ég er að tala um 62. gr. almannatryggingalaga og framkvæmd þeirra í reynd sem útleggst þá vissulega í ákvörðun í fjárlögum. En það er textinn í almannatryggingalögunum sem er vandamál. Miðað við allan almennan skilning eiga bætur almannatrygginga að hækka a.m.k. um verðbólgu en eiga samt að miða við launaþróun ef hún er hærri, verðbólgu ef hún er hærri, hærra af þessu hvoru tveggja. Þetta hefur bara ekki verið framkvæmdin og þess vegna spyr ég: Af hverju var það ekki lagað?