breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Þetta er rétt hjá hv. þingmanni, hann er að vísa í þessa grein í almannatryggingalögum og takk fyrir að leiðrétta mig með það. Ég tel að það sem hafi verið meginástæðan í þessum lagabreytingum, líkt og ég fór hér yfir í máli mínu, sé að breyta kerfinu til þess að gera það gagnsærra, til þess að tryggja betur réttindi fólks. Og ég verð að vera ósammála hv. þingmanni um að þessi grein sé stærsta vandamálið. En það er annað sem skiptir líka máli og það er að uppbætur á hina ýmsu bótaflokka hafa ekki fylgt verðlagi en svo mun verða í framtíðinni og það verður alveg gríðarlega mikil kjarabót, einmitt til að allt haldi í við verðlag. Ég tel að að þessu sögðu (Forseti hringir.) þá séu það einmitt önnur atriði í frumvarpinu sem skipta meginmáli.