154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:24]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta velfn. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að þurfa að koma hérna upp og bera af sér sakir, það er fáránlegt að það skuli eiga sér stað í þessu máli. Ég skal bara segja alveg eins og er að þegar þetta mál var tekið út úr nefnd þá var ég á móti því. Það er bókað. Ég var á móti því að taka þetta mál út úr nefndinni. Ég var á móti því og vildi ekki vera á nefndaráliti meiri hlutans. Það er alveg á hreinu. Hvað með þessar breytingar frá velferðarnefnd sem eiga að hafa múlbundið mig til að hætta við nefndarálit, hætta við breytingartillögur af því að ég skrifa upp á þetta blað? Það var aldrei nefnt á nefndarfundi að með því að ég gerði þetta væri ég að afsala mér þessum rétti. Og ef það hefði verið nefnt þá hefði ég aldrei skrifað upp á þetta, aldrei nokkurn tímann. Við skulum hafa hlutina rétta. Það er alveg með ólíkindum að hlutunum skuli snúið svona gjörsamlega á hvolf. Ég veit ekki hvort þetta er örvænting — vegna þess að það er margt gott í þessu frumvarpi en margt slæmt líka — að það sé einhver ástæða til að fara í einhvern leik til að reyna að leiða mig í gildru, svo að það sé hægt að þagga niður í mér hérna í þessum ræðustól og ég fái ekki að flytja mitt nefndarálit, ég fái ekki að flytja mínar breytingartillögur. Ég heyrði af þessum breytingartillögum frá hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni. Ég var að samþykkja breytingartillögur hjá honum og hinum meiri hlutanum, ég var aldrei nokkurn tíma — og ég spyr hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur hvort hún geti þá sýnt fram á hvar ég hef samþykkt, með því að skrifa upp á þetta, að ég myndi afsala mér nefndaráliti og breytingartillögum. Sýndu það.