154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég byrjaði á því að mæla fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar. Þar kom fram hverjir skrifa undir það álit. Það er hárrétt, hv. þingmaður er ekki á því nefndaráliti. Svo gerðist það að fram komu breytingartillögur frá þingmönnum í minni hluta hér á Alþingi og við gerð þinglokasamninga var partur af þeim samningum að fallast á hluta af þeim tillögum og koma öðrum tillögum til meðferðar til þess að ná utan um málið og skapa sátt. Þetta finnst mér skipta máli þegar við erum að ræða um svona stórt og mikið mál. Það er undir það nefndarálit sem hv. þingmaður skrifaði og velferðarnefnd öll. Ég tel að af orðanna hljóðan sé með því annars vegar að skrifa undir þinglokasamninga og hins vegar að standa að framhaldsnefndaráliti með velferðarnefnd allri verið að taka utan um málið með ákveðnum hætti og ég tel raunar að allir aðrir þingmenn hafi skilið málið með sama hætti.