154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:28]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta velfn. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er alveg með ólíkindum. Ég skrifaði ekki og hef ekki skrifað undir neitt, engan lokasamning eða neitt. Það er hvergi undirskrift mín á því. Og það að með því að styðja einhver góð mál hjá velferðarnefnd um breytingar á þessu máli, sem er bara sjálfsagður hlutur, sé ég að segja þar með að ég megi ekki vera með nefndarálit og breytingartillögur, ég hefði aldrei skrifað upp á það, aldrei nokkurn tíma, ef ég hefði vitað það, aldrei. Og ég hefði ekki samþykkt lokasamningana ef ég hefði átt að skrifa upp á það að ég mætti ekki leggja fram nefndarálit og breytingartillögur. (IngS: Enda kom það aldrei …) Við skulum bara hafa það á hreinu. Það er alveg með ólíkindum að þessu skuli vera stillt upp svona þegar sannleikurinn liggur algjörlega fyrir. Ég skrifaði ekki upp á neitt og ég er með þessu velferðarmáli bara að styðja gott málefni. Og ef ég má það ekki án þess að eiga á hættu að ég megi ekki koma með nefndarálit og breytingartillögur hér í þinginu þá mun ég aldrei skrifa upp á svona aftur.