154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það hefði kannski verið ágætt ef hv. þingmaður hefði lesið betur það nefndarálit sem hann skrifaði undir hjá hv. velferðarnefnd. En ég tel mig ekki þurfa að hafa neitt fleiri orð um þetta. Ég tel að það hafi alveg verið skýrt hvernig gengið var frá þinglokasamningum og að það kæmi svo í hlut velferðarnefndar að ganga frá þeim samningum yfir á þingskjal svo að hægt væri að taka og gera orð þinglokasamninganna að veruleika hér í þessum þingsal. Út á það gengur framhaldsnefndarálit velferðarnefndar. En svo verða þingmenn bara að eiga það við sjálfa sig hvernig þeir kjósa að ganga um samkomulag og hvernig þeir telja sig ætla að standa við það.