154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[14:31]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Herra forseti. Við ræðum hér risastórt mál sem varðar kjör tugþúsunda Íslendinga og öryggisnet alls vinnandi fólks í landinu. Það getur hver sem er lent í því að veikjast eða lent í slysi. Það getur hver sem er orðið fyrir því að missa starfsgetuna. Þá kemur til kasta almannatryggingakerfisins, kerfis sem við eigum öll saman og hefur verið byggt upp fyrir tilstilli verkalýðshreyfingarinnar, jafnaðarmanna og annarra framsýnna stjórnmálahreyfinga. Hér í þessu frumvarpi er mælt fyrir breytingum á kerfinu að því er varðar öryrkja og stöðu þeirra.

Ég hef gagnrýnt ýmis ákvæði og ýmsa þætti frumvarpsins harðlega og ég mun fjalla um þá gagnrýni og viðbrögð við henni hér á eftir og þær breytingar sem hafa orðið á málinu en fyrst vil ég fara aðeins yfir það sem var til bóta í frumvarpinu strax þegar það var lagt fram á Alþingi, hvað var gott í því. Í frumvarpinu eins og það kom frá hæstv. félagsmálaráðherra er mælt fyrir um löngu tímabæra sameiningu greiðsluflokka í örorkulífeyriskerfinu, einföldun á skerðingarreglum og hækkun frítekjumarks. Þetta eru mikilvægar kjarabætur fyrir flesta öryrkja. Auk þess eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi stuðningskerfis vegna heilsubrests og endurhæfingar þar sem tekinn er upp nýr greiðsluflokkur, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, sem tryggir framfærslu fólks miklu betur heldur en er gert í núverandi kerfi. Svo felur frumvarpið í sér mikilvægar breytingar sem miða að auknu samstarfi og samfellu milli félagslegra þjónustukerfa í þágu þeirra sem reiða sig á þau.

Eins og ég segi í nefndaráliti mínu um málið þá lýsir Samfylkingin eindregnum stuðningi við þessar tilteknu breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Við teljum brýnt að þær nái fram að ganga og ég vil nota tækifærið hér og hrósa hæstv. ráðherra fyrir þessa þætti frumvarpsins. Það voru hins vegar mjög alvarlegir ágallar á málinu þegar það kom hingað inn í þingið. Sumum þeirra hefði eflaust mátt komast hjá með því að viðhafa meira og dýpra samráð við hagsmunasamtök öryrkja og fólks með fötlun við undirbúning málsins. Enginn öryrki og enginn fulltrúi frá ÖBÍ réttindasamtökum eða öðrum samtökum fatlaðs fólks átti sæti í stýrihópi og sérfræðingateymi ríkisstjórnarinnar um þessa heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. ÖBÍ gagnrýndu sérstaklega að ekki skyldi haft raunverulegt samráð við samtökin fyrr en eftir að frumvarpsdrög lágu fyrir. Þau sendu út sérstaka fréttatilkynningu til að leiðrétta þá ranghugmynd að frumvarpið hefði einhvern veginn allt verið unnið í samráði og samstarfi við þau. Það má líka gagnrýna með hve takmörkuðum hætti var brugðist við athugasemdum þegar þær komu fram við málið í samráðsgátt og auðvitað er óheppilegt hversu seint málið kom fram hérna á Alþingi sem þýðir að velferðarnefnd hefur þurft að hafa hraðari hendur heldur en kannski er æskilegt þegar verið er að gera grundvallarbreytingar á lögum sem varða lífsafkomu meira en 20.000 manns.

Þann 9. maí sl. birti ég grein á vísi.is undir yfirskriftinni „Stórhættulegir ágallar á örorkufrumvarpi ríkisstjórnarinnar.“ Þar fór ég með ítarlegum hætti yfir afstöðu mína og afstöðu okkar í Samfylkingunni til frumvarpsins eins og það var lagt fram á Alþingi af ráðherra. Ég gerði alvarlegar athugasemdir við tiltekin ákvæði og benti á að fjöldi öryrkja myndi í raun sitja eftir ef ekki yrðu gerðar talsverðar breytingar á málinu. Ég gekk í raun svo langt að fullyrða að það væri óforsvaranlegt að hleypa málinu í gegnum Alþingi ef ekki ættu sér stað verulegar breytingar. Þessa grein og þessi sjónarmið sem koma fram í henni, og ég hef líka viðrað á vettvangi velferðarnefndar og gerði strax á fyrri stigum, hafa verið mitt leiðarljós og okkar í Samfylkingunni í umfjöllun og umræðu um þetta mál. Þar setjum við niður ákveðin viðmið eða mælikvarða á það hvað þurfi að breytast, hvað þurfi að gerast til að hægt sé að greiða fyrir framgangi málsins og jafnvel styðja það.

Nú skulum við fara yfir hvað hefur gerst síðan málið kom upphaflega fram, hvað hefur gerst eftir að ég setti þessa gagnrýni fram, eftir að ÖBÍ réttindasamtök birtu sína umsögn um málið og fleiri samtök fatlaðs fólks og öryrkja og eftir að fjallað var ítarlega um málið á vettvangi velferðarnefndar. Það sem gerist þá er það að meiri hlutinn í velferðarnefnd, undir forystu hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur, formanns nefndarinnar, féllst á margt af því sem kom fram í þessari gagnrýni og lagði fram nefndarálit sem kemur að talsverðu leyti til móts við þessar athugasemdir sem bæði ég og ÖBÍ höfðum sett fram og fleiri þingmenn. Förum bara yfir þetta lið fyrir lið. Í grein minni benti ég á að það þyrfti að skoða sérstaklega hvernig öryrkjum framtíðar, þeim sem eru ekki með örorkumat nú þegar, myndi reiða af í nýja greiðslukerfinu í samanburði við greiðslurnar sem mætti ætla að þeir fengju, alla vega margir þeirra, ef kerfinu yrði ekki breytt.

„Af greinargerð frumvarpsins og kynningu þess er ljóst að gert er ráð fyrir að stór hluti fólk sem mun fá fyrsta mat á næstu árum verði metið með 26–50% starfsgetu og sett á hlutaörorkulífeyri, fólk sem í mörgum tilvikum hefði verið metið með 75% örorku samkvæmt núverandi kerfi.“

Þannig er það. Öryrkjar eru alla jafna, þ.e. fólkið sem er metið með 75% örorku, það er svo ofboðslega fámennur hópur sem er á þessum örorkustyrk í kerfinu eins og það er í dag og hér er gert ráð fyrir að það verði fleiri á hlutaörorkulífeyri og allar væntingar um sparnað einhvern veginn til lengri tíma að byggja auðvitað á slíkum væntingum.

„Í nýja kerfinu mun fólk á hlutaörorkulífeyri eiga rétt á tímabundnum virknistyrk meðan á atvinnuleit stendur sem nemur mismun hlutaörorkulífeyris og fulls örorkulífeyris. Í ljósi þess að virknistyrkur fellur niður við fyrstu krónu sem fólk vinnur sér inn þurfa atvinnutekjur vegna hlutastarfs að vera um eða yfir 250 þúsund krónur á mánuði svo að heildartekjur verði ekki lægri í nýja kerfinu en þær hefðu verið miðað við 75% örorkumat í núverandi kerfi.“

Í nefndaráliti meiri hlutans voru lagðar til breytingar sem taka á þessu. Þar er lagt til að hlutaörorkulífeyrir verði 25.000 kr. hærri á mánuði en gert er ráð fyrir í frumvarpinu eins og það var upphaflega. Með þessu verður að segjast að afkoma þeirra sem fá hlutastarf á lágum launum er miklu betur tryggð en í upprunalegu frumvarpi og jafnframt er dregið úr vægi virknistyrksins, enda nemur fjárhæð hans mismuni hlutaörorkulífeyris og fulls örorkulífeyris. Ég bað ÖBÍ réttindasamtök um að taka saman áhrifin af þessari breytingu og lagði fram, samhliða framlagningu nefndarálitsins sem ég er að mæla fyrir, sem fylgiskjal töflur sem sýna áhrifin af þessu. Þær sýna einfaldlega að áhrifin af þessari breytingu eru veruleg fyrir tekjulægri öryrkja. Það er ekki enn þá þannig að þarna sé fjöldi öryrkja að lækka í tekjum.

Höldum áfram. Í greininni minni gagnrýndi ég líka ákvæði frumvarpsins um virknistyrk og sagði þau meingölluð.

„Í fyrsta lagi mun virknistyrkurinn falla alfarið niður um leið og fólk vinnur sér inn eina krónu í atvinnutekjur,“ skrifaði ég. „Fjárhæð virknistyrks nemur 95 þúsund krónum á mánuði sem þýðir að ábatinn af því að vinna sér inn 100 þúsund krónur er 5 þúsund krónur fyrir skatt. Öryrkjar í atvinnuleit munu í raun sæta strangari reglum en aðrir atvinnuleitendur sem í dag njóta 86.114 kr. frítekjumarks á mánuði og hafa þannig svigrúm til að sinna tilfallandi vinnu án þess að verða fyrir skerðingu.“

Það hefur líka verið brugðist við þessari gagnrýni á vettvangi velferðarnefndar. Þar er lagt til í áliti meiri hlutans að í stað þess að styrkur falli vissulega niður vegna tilfallandi vinnu skuli ekki greiddur virknistyrkur fyrir þá daga sem vinnan stendur yfir. Með þessari breytingu og með samspili hennar við þessa hækkun hlutaörorkulífeyris sem er verið að leggja til er staða þeirra sem eru metnir með hlutaörorku og eru í þessum vinnumarkaðsaðgerðum að þiggja virknistyrkinn einfaldlega miklu betri heldur en gert var ráð fyrir í upphaflegu frumvarpi.

Ef við höldum svo áfram þá gagnrýndi ég líka óskýrleika og ófyrirsjáanleika vegna hins svokallaða samþætta sérfræðimats sem tekið verður upp samkvæmt frumvarpinu. Þegar við ræðum þessa gagnrýni skulum við samt líka bara halda því til haga að örorkumatið eins og það er í dag, þetta læknisfræðilega mat, er gagnrýnivert á svo marga vegu. Ég benti á að framkvæmd þessa samþætta sérfræðimats verður auðvitað sá grundvöllur sem stjórnarskrárbundinn réttur fólks til framfærsluaðstoðar verður ákvarðaður samkvæmt. Í ljósi þess hlýtur að skipta gríðarlegu máli hvað nákvæmlega felst í þessu samþætta sérfræðimati, hverjir efnisþættir þess eru, hvaða sjónarmið og hvaða mælikvarðar munu ráða för og hvers konar aðferðafræði og sérfræðiþekkingu verður byggt á. Þessum spurningum er ekki svarað í frumvarpinu og greinargerð þess heldur er ráðherra falið að útfæra þessi grundvallaratriði í reglugerð. Svo er starfshópur að þróa staðlað matstæki vegna samþætts sérfræðimats. Hann hefur hafið störf en enn sem komið er liggja ekki fyrir drög að reglugerð um helstu efnisþætti sérfræðimatsins. Að þessu leyti hefur Alþingi svolítið verið að fjalla um þetta mál í ákveðinni móðu. Þess vegna gagnrýni ég og skrifaði:

„Með þessu yrðu meiriháttar völd framseld til ráðherra og Tryggingastofnunar um það hvernig rétturinn til framfærslu verður ákvarðaður. Þannig myndi Alþingi í raun samþykkja grundvallarbreytingu á örorkulífeyriskerfinu án þess að vita hvað felst í breytingunni. […] Tryggingastofnun, sem mun framkvæma matið, fær nær engar leiðbeiningar um framkvæmdina í lagatexta.“

Meiri hlutinn brást að mjög óverulegu leyti við þessu atriði í sínu nefndaráliti en lagði þó til að það yrði sett inn mjög almenn lýsing á samþættu sérfræðimati í lagatexta sem er auðvitað skref í rétta átt og góð breyting svo langt sem hún nær. Ég var líka mjög ánægður með að orðið var við beiðni minni um að hagsmunasamtök fatlaðs fólks fengju að tilnefna fulltrúa í starfshópinn sem verður skipaður strax við gildistöku laganna, það er líka mikilvægt að hann er skipaður strax, til þess að greina áhrif frumvarpsins og fylgjast með innleiðingunni.

Breytingar meiri hlutans voru allar til bóta. Ég var mjög ánægður með þær. Þar vantaði hins vegar nokkur mjög mikilvæg atriði. Þar var ekki brugðist við nokkrum af kannski veigamestu gagnrýnisatriðum mínum, fleiri þingmanna og Öryrkjabandalagsins. Til dæmis eru það atriði varðandi niðurfellingu virknistyrks. Svo er það t.d. sú staðreynd að öryrkjar sem búa einir og eru með öllu óvinnufærir og hafa kannski alltaf verið, þeir sitja beinlínis eftir með breytingunum og fá ósköp litla hækkun og jafnvel, ef við gerum ráð fyrir að desembereingreiðslan falli niður, þetta er eingreiðsla sem hefur svolítið verið rökstudd út frá því að heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu sé ekki enn þá lokið, ef við gerum ráð fyrir að hún falli brott eins og hefur verið talað um þá hefði þetta þýtt að það væri þarna hópur öryrkja, sem búa einir og eru í mjög viðkvæmri stöðu, sem yrði beinlínis fyrir lækkun á árstekjum. Þetta var meiri háttar ágalli á frumvarpinu eins og það kom fram hér á Alþingi og mjög slæm skilaboð fólgin í þessu.

Eftir að velferðarnefnd hafði formlega lokið umfjöllun sinni um málið og eftir að stjórnarmeirihlutinn hafði lagt fram sitt nefndarálit þá var staðan þessi, og nú ætla ég að vitna í nefndarálitið mitt sem er ritað og birt þann 13. júní sl.:

„Eftir standa þó alvarlegir veikleikar á frumvarpinu sem ekki hefur verið brugðist við. Enn er gert ráð fyrir að stór hluti þeirra öryrkja sem búa einir og eru með öllu óvinnufærir sitji eftir við breytingarnar og enn er uppi óvissa og ófyrirsjáanleiki um útfærslu og framkvæmd hins samþætta sérfræðimats. Þá er ljóst að ýmsar alvarlegar brotalamir í örorkulífeyriskerfinu, sem gagnrýndar hafa verið um árabil og ætti sannarlega að breyta þegar heildarendurskoðun á kerfinu fer fram, verða áfram til staðar eftir gildistöku laganna. Að mati 1. minni hluta er heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu langt í frá lokið.“

Það var um þetta leyti líka sem ég boðaði til fundar hér á Alþingi, í hátíðarsal Smiðju, og bauð öryrkjum til samtals, að koma og eiga milliliðalaust samtal við mig og hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, um heimilisbókhaldið, um þessar breytingar, um kosti þeirra og galla. Það komu fram mjög gagnlegar ábendingar um hitt og þetta. Það er margt sem fólk var ánægt með en annað sem fólk hafði miklar áhyggjur af. Við ræddum þetta allt saman og fórum yfir. Ég skynjaði, eins og ég segi, talsverðar áhyggjur af ákveðnum þáttum málsins og ekki síst áhyggjur af stöðu þeirra sem eru nú þegar með örorkumat sem er kannski að fara að renna út á næsta ári eða þarnæsta og fólk einhvern veginn óttast að vera þvingað í þetta samþætta sérfræðimat. Við áttum líka góð og gagnleg samtöl við hagsmunasamtök öryrkja þessa daga og lögmenn sem hafa mikla reynslu af því að reka mál, m.a. gegn Tryggingastofnun, fyrir fólk sem reiðir sig á örorkulífeyriskerfið.

Út úr öllum þessum samtölum hófumst við handa við að smíða breytingartillögur, hugsuðum þetta sem ákveðnar lágmarkskröfur um breytingar á frumvarpinu. Hér áttu stjórnmálaflokkarnir í stjórnarandstöðu mjög góð samtöl og samstarf um þetta og á endanum fór það svo að allir flokkar í stjórnarandstöðu, Samfylkingin, Flokkur fólksins, Píratar, Viðreisn, Miðflokkurinn, flokkar sem eru algerlega þvers og kruss á hinu pólitíska landakorti og að ýmsu leyti eflaust með ólíkar hugmyndir um almannatryggingakerfið, á endanum fór það nú samt svo að við gátum komið okkur saman um ákveðnar lágmarksbreytingar sem yrðu þá að verða á þessu máli. Við fulltrúar þessara flokka í velferðarnefnd lögðum fram sameiginlegar breytingartillögur. Þetta eru fimm breytingar sem lagðar eru til á þskj. 1907.

Í fyrsta lagi leggjum við til að fjárhæð heimilisuppbótar verði 756.000 kr. á ári en ekki 684.000 kr., þ.e. 6.000 kr. hærra á mánuði heldur en var gert ráð fyrir í frumvarpi ráðherra. Þetta er grundvallaratriði því að svona komum við í veg fyrir að öryrkjar sem eru einir um heimilishald og njóta ekki hagræðis af sambúð með öðrum sitji algerlega eftir við breytingarnar. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé mikil hækkun en þetta þýðir samt að við hindrum að nokkur öryrki í þessari stöðu muni beinlínis lækka í árstekjum eins og kom fram áðan. Þeir munu þó hækka lítillega. Það er verið að tryggja að þessi hópur sitji ekki gersamlega eftir, sem hefði verið óforsvaranlegt.

Í öðru lagi leggjum við til að skýrt verði betur — og þetta tengist auðvitað því sem ég var að ræða hér áðan, áhyggjum fólks sem er nú þegar með örorkumat af því að vera þvingað í samþætt sérfræðimat gegn vilja sínum — við leggjum til að þetta verði skýrt betur, hnykkt betur á því í frumvarpinu að þeir sem uppfylla skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris og örorkustyrks 31. ágúst 2025 hafi val um að fá greitt samkvæmt nýja greiðslukerfinu en í samræmi við fyrra örorkumat um ókominn tíma frá gildistöku laganna, að greiðsluþegum sé heimilt en ekki skylt að óska eftir mati á getu til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati. Svo að það komi skýrt fram þá var þetta og hefur sannarlega verið ætlunin samkvæmt frumvarpinu eins og það var lagt hér fram og það kemur nú þokkalega skýrt fram í greinargerð. En við og ÖBÍ réttindasamtök og m.a. lögmenn, eins og ég minntist á áðan, vorum sammála um að það væri æskilegt að njörva það enn þá betur niður í lögunum að þetta væri algerlega hafið yfir allan vafa. Ég held að það sé ekki bara gott lögfræðilega heldur líka bara upp á þau skilaboð sem eru send með þessu máli, að það geti allir sofi rótt, að það sé algerlega hafið yfir allan vafa að enginn verði þvingaður í samþætt sérfræðimat og enginn þurfi að hafa áhyggjur af þessu eftir að breytingarnar ganga í gegn.

Í þriðja lagi leggjum við til í breytingartillögunum okkar að kveðið verði á um það í lögunum að ráðherra skuli eigi síðar en 1. maí 2025 flytja Alþingi skýrslu um undirbúning innleiðingar samþætts sérfræðimats. Skýrslu ráðherra skuli svo vísað til velferðarnefndar til umfjöllunar. Þá er gert ráð fyrir því að við vinnuna geti nefndin fengið á sinn fund ráðherra og fulltrúa starfshópsins sem vinnur að útfærslu og innleiðingu samþætts sérfræðimats. Hér er ætlunin að tryggja þinglegt eftirlit og eftirfylgni með útfærslu og þróun matsins sem er algjört grundvallaratriði. Þá erum við líka að senda þau skilaboð að Alþingi sé ekki bara búið að gera sitt einhvern veginn og núna sé þetta allt í höndum ráðherra og Tryggingastofnunar. Það er ekki þannig. Það verður fylgst með þessu mjög gaumgæfilega á vettvangi velferðarnefndar og kallað eftir upplýsingum í rauntíma. Þetta skiptir máli.

Loks eru tvær breytingartillögur sem við lögðum fram í viðbót, annars vegar varða þær afnám skerðinga vegna fjármagnstekna maka. Þetta hefur lengi verið baráttumál ÖBÍ réttindasamtaka. Það er svona á meðal þeirra furðulegheita sem á bara eftir að laga í örorkulífeyriskerfinu. Svo eru ákvæði um niðurfellingu virknistyrks sem maður hefði sannarlega viljað ná fram en sameinuð stjórnarandstaða setti þessar fimm breytingar á oddinn í þinglokasamningum.

Ég er búinn að fara ítarlega yfir þessar þrjár helstu breytingartillögur og það mátti öllum vera ljóst að hér yrði svo sannarlega talað í þingsal og það yrði nú lítill friður ef ekki yrði að einhverju marki komið til móts við kröfur stjórnarandstöðunnar. Þetta var lykilatriði í þinglokasamningum því að þetta er einfaldlega grundvallarmál sem snertir lífsafkomu meira en 20.000 manns, þetta snertir öryggisnet hins almenna launamanns og hér er ekki hægt að gefa neinn afslátt. Þinglokaviðræðum lyktaði með þeim hætti, virðulegi forseti, að ákveðið var af fulltrúum allra flokka að samþykkja þessar helstu og mikilvægustu kröfur stjórnarandstöðunnar er lúta að örorkufrumvarpinu. Þannig að nú liggur fyrir að þær þrjár breytingartillögur sem ég fór yfir hérna áðan, hækkun heimilisuppbótar, aukinn skýrleiki um að enginn öryrki, enginn sem er nú þegar inni í kerfinu verði þvingaður í samþætt sérfræðimat og loks ákvæði um þinglegt eftirlit með samþætta sérfræðimatinu sem sendir mjög skýr skilaboð, nú liggur fyrir að þessar þrjár breytingar munu fylgja þegar málið kemur hér til endanlegrar afgreiðslu. Þessar þrjár breytingar verða að öllu óbreyttu samþykktar hér í þingsal. Hinar tvær verða samkvæmt samkomulagi settar í ákveðið ferli í stjórnkerfinu á milli ráðuneyta. Þetta eru málalyktir sem ég get alveg sætt mig við og þótt það séu endurskoðunarákvæði í frumvarpinu, að eftir svo og svo mörg ár skuli þetta og hitt endurskoðað, þá er það auðvitað þannig að svo er skipt um stjórnarmeirihluta á Alþingi á fjögurra ára fresti. Það gerist ýmislegt. Lögin taka gildi frá og með 1. september 2025 og mér finnst ekkert ólíklegt að næst komist til valda ríkisstjórn sem mun vilja gera ýmsar frekari breytingar á örorkulífeyriskerfinu og þá mun líka gefast tækifæri til, eftir einmitt að hafa legið yfir útfærslunni á m.a. samþættu sérfræðimati og innleiðingu frumvarpsins að öðru leyti, að sníða einhverja annmarka af þeim lögum sem stefnir í að nú verði samþykkt.

Hefði maður viljað ganga lengra? Hefðum við í Samfylkingunni viljað nota tækifærið í þessari atrennu og laga ýmsar aðrar alvarlegar brotalamir á almannatryggingakerfinu og örorkulífeyriskerfinu? Já, svo sannarlega hefðum við viljað taka t.d. 62. gr. almannatryggingalaga til endurskoðunar þegar við vitum hvernig framkvæmdin á henni hefur verið. Hefðum við viljað skýra betur við hvað er miðað, negla það t.d. niður að hækkanir skuli fylgja ekki bara launaþróun einhvern veginn og leyfa svo fjármálaráðuneytinu að ákveða eftir geðþótta á hverju ári hvað launaþróun nákvæmlega er heldur binda það niður að launavísitölu skuli fylgt eða hefði mátt búa til sérstaka vísitölu eins og er stuðst við t.d. í Svíþjóð og Danmörku? Svo sannarlega. Hefðum við viljað að aldursviðbótin yrði hærri til að koma til móts við fólk sem missir starfsgetu snemma á ævinni eða hefur aldrei haft starfsgetu? Já. Það eru ótal atriði sem standa út af. Endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu er ekkert lokið en ég tel engu að síður að með þeim breytingum sem nú stefnir í að verði á þessu máli, bæði með mjög mikilvægum breytingum meiri hlutans og með mikilvægum breytingum sem sameinuð stjórnarandstaðan lagði til, að þetta frumvarp hafi tekið stakkaskiptum til hins betra. Það er ekki fullkomið, ekki frekar en það kerfi sem við búum nú þegar við í þessum efnum, og ég hef enn þá áhyggjur af ákveðnum atriðum. Ég hef farið yfir nokkur þeirra og það eru ákvæði í þessu frumvarpi sem mun þurfa að fylgjast alveg sérstaklega með þar.

En pólitík snýst um málamiðlanir og í þeirri mynd sem málið er að taka á sig, þar sem í rauninni eru fingraför allra flokka að einhverju leyti á þessu máli og það er verið að setja u.þ.b. milljarð í viðbót inn í kerfið frá því sem gert var ráð fyrir við framlagningu frumvarpsins til að koma til móts við hópana sem ellegar hefðu ekkert eða nær ekkert fengið út úr breytingunum, þá erum við í Samfylkingunni tilbúin að styðja þetta mál. Með þessu máli verður örorkulífeyriskerfið umtalsvert betra frá og með 1. september 2025 heldur en það er í dag. Það er ekki nokkur vafi á því í mínum huga. Og ég held að við getum í meginatriðum verið stolt af þessu máli. Með því er verið að stíga stórt skref í rétta átt. Ég vil þakka hv. nefndarmönnum velferðarnefndar fyrir samstarfið og ég vil hrósa hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir að hafa haldið vel á málinu sem formaður velferðarnefndar.