breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Annar minni hluti, sú er hér stendur, fagnar löngu tímabærri endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu og styður málið með þeim athugasemdum sem ég mun hér gera grein fyrir, ásamt breytingartillögum sem lagðar hafa verið fram, samanber framhaldsnefndarálit nefndarinnar um málið. Markmið örorkulífeyriskerfis almannatrygginga er að tryggja rétt fólks með skerta starfsgetu til mannsæmandi framfærslu og tækifæra til þátttöku í samfélaginu til jafns við annað fólk. Við útfærslu kerfisins þarf því að vanda til verka og gæta þess að enginn lendi á milli kerfa eða verði af réttindum sínum vegna kerfisgalla.
Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf núverandi ríkisstjórnarflokka er tekið fram að auðvelda skuli þátttöku og endurkomu einstaklinga með skerta starfsgetu á vinnumarkaði þannig að fólk hafi fjárhagslegan hag af atvinnuþátttöku og fái tækifæri á vinnumarkaði án þess að afkomuöryggi þess sé ógnað. 2. minni hluti tekur heils hugar undir þau markmið. Aftur á móti eru nokkur atriði í frumvarpinu sem samrýmast þessum markmiðum ekki fyllilega að mati mínu og ég tel ástæðu til að vekja athygli á.
Í fyrsta lagi er varðar úrræði fyrir fólk með fjölþættan vanda harma ég hversu hljótt frumvarpið er um stöðu einstaklinga með fjölþættan vanda, þ.e. einstaklinga sem glíma við bæði líkamlegan og/eða andlegan heilsubrest og jafnvel fíknivanda að auki. Það er mikilvægt að kerfið taki mið af þörfum notenda en ekki kerfisins og því verða fjölbreytt úrræði að vera fyrir hendi á forsendum einstaklingsins þar sem hann er staddur. Samtökin Hugarafl hafa lýst áhyggjum af því að kerfið gæti áfram reynst óþarflega flókið og þungt í vöfum þrátt fyrir breytingarnar sem gerðar eru með frumvarpinu, sem geti leitt til þess að einstaklingar falli á milli skips og bryggju eða sé vísað á milli mismunandi stofnana og endurhæfingaraðila án þess að finna lausn sem hentar. Bataferli fólks gengur mun betur ef það er á forsendum einstaklingsins sjálfs. Og ég trúi því að markmiðið með öllu okkar kerfi sé að gera fólki kleift að ná bata og lifa lífi sínu til fulls og vera besta útgáfan af sjálfu sér, ekki eingöngu að tryggja að allir einstaklingar í samfélaginu séu virkt vinnuafl. Einstaklingar hafa sjálfstætt gildi í samfélaginu, hvort sem þeir eru færir um að vera á vinnumarkaði eða ekki.
Í kerfinu er lítið svigrúm fyrir bakslag í batanum. Þetta er enn þá vandamál þrátt fyrir að vitað sé að bataferli einstaklinga er sjaldnast línulegt. Einfaldara og einstaklingsmiðaðra kerfi kemur í veg fyrir að bakslag verði í bataferli einstaklings vegna skorts á stuðningi og eftirfylgni en það hefur verið á það bent og er einn af stóru göllunum í núverandi kerfi að því miður er það stundum kerfið sem kemur í veg fyrir að fólk haldi áfram á þeirri jákvæðu vegferð sem það er komið af stað í. Að einhverju leyti er verið að koma til móts við þær áhyggjur með þessu frumvarpi en ég tel engu að síður að það hefði farið vel á því að vinna frumvarpið enn betur og í nánari samvinnu við samtök og fagaðila sem hafa sérþekkingu á stöðu einstaklinga með fjölþættan vanda. Samvinna og samráð snýst nefnilega ekki bara um að gefa fólki kost á að tjá sig, það snýst um að setjast niður og vinna að hlutunum saman þar sem þekking og afstaða allra aðila kemur til raunverulegrar skoðunar.
Í 17. gr. frumvarpsins er lagt til að fella niður 2. og 4. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, um uppbætur á lífeyri, svokallaða sérstaka framfærsluuppbót. Í greinargerð með frumvarpinu segir að falli greinin brott þurfi að leita annarra leiða til að bæta framfærslu þeirra sem ekki hafa áunnið sér fullan rétt til lífeyris innan almannatryggingakerfisins vegna stuttrar búsetu hér á landi og tekið er fram að verið sé að skoða ýmsar leiðir í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Ljóst er að falli framfærsluuppbótin niður, eins og lagt er til með frumvarpinu, mun það skerða greiðslur til þeirra einstaklinga sem ekki hafa fullan búseturétt, eins og það er kallað. Ég tek því undir með ÖBÍ réttindasamtökum að það sé í raun ótækt að fella uppbótina niður áður en framtíðarlausn er fundin og legg áherslu á að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hraði vinnu við að leysa úr þessu áður en lögin taka gildi og treysti því að það verði gert.
Í c-lið 23. gr. frumvarpsins er lagt til að svokallaður virknistyrkur falli niður hafni styrkþegi starfi eftir að hafa verið a.m.k. tvo mánuði í atvinnuleit. Í minnisblaði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins til velferðarnefndar frá 31. maí 2024 segir að styrkþegar hafi ríkara svigrúm en almennir atvinnuleitendur innan atvinnuleysistryggingakerfisins þar sem virknistyrkur sé ekki felldur niður fyrr en í fyrsta lagi eftir tveggja mánaða atvinnuleit og að Vinnumálastofnun hafi mjög ríkar heimildir til að meta aðstæður viðkomandi atvinnuleitanda heildstætt áður en virknistyrkurinn er felldur niður. Umsagnaraðilar, svo sem ÖBÍ réttindasamtök og MS-félag Íslands, viðruðu áhyggjur af þessari auknu áherslu á þátttöku fólks með skerta starfsgetu á vinnumarkaði þar sem hingað til hefur ekki verið um auðugan garð að gresja þegar kemur að hlutastörfum almennt. Þetta var raunar vandamál sem var mikið rætt í nefndinni og margir umsagnaraðilar bentu á. Það er ekki nóg að lögin og kerfið geri ráð fyrir því að fólk geti komist hægt og rólega út á vinnumarkaðinn með því að taka að sér hlutastörf, það þarf líka ákveðna hugarfarsbreytingu á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu.
Þá hefur vinnumarkaðurinn ekki virst nægilega opinn fyrir þessu fyrirkomulagi og það sem er kannski helst gagnrýnivert en er kannski ekki hægt að leysa með þessu frumvarpi er það að hvorki ríki né sveitarfélög hafa sýnt frumkvæði hvað þetta varðar, t.d. með því að bjóða upp á hlutastörf. Þegar einungis eru gefnir þessir tveir mánuðir til að finna starf er hætt við því að einstaklingar lendi aftur á milli kerfa falli virknistyrkurinn niður svo fljótt. Líkt og Landssamtökin Þroskahjálp benda á í umsögn sinni þá er fatlað fólk sem ekki hefur tök á að afla sér annarra tekna dæmt til ævilangrar fátæktar og félagslegrar jaðarsetningar. Þó að svigrúmið sé meira en gengur og gerist um almenna atvinnuleitendur þá er staða fólks með skerta vinnugetu í leit að hlutastarfi að svo miklu leyti ósambærileg að ástæða er til að veita meira svigrúm. Þá er líka á það bent í umsögn Hugarafls að ef fólk upplifir sig tilneytt til að fara aftur út á vinnumarkað án þess að vera reiðubúið til þess eykur það hættuna á bakslagi í bataferli viðkomandi. Of skammur frestur kann líka að leiða til þess að fólki finnist það vera byrði á samfélaginu frekar en að geta einbeitt sér að bata og lifað með reisn sem er það sem við ættum að vera að vinna að.
Að þessu sögðu, eins og hefur komið hér fram í umræðunni, þá náðist samstaða í velferðarnefnd á milli minni hluta og meiri hluta um að gera tilteknar breytingar og er það mjög vel. Það er gríðarlega mikill árangur og mikill sigur fyrir okkur sem lögðum fram þær breytingartillögur að hversu miklu leyti var komið til móts við þær og fögnum við því. Að því leyti sem ekki var komið til móts við þær munum við halda áfram að ýta á eftir því að það verði allt saman lagað.
Að öllu þessu framansögðu virtu þá legg ég til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á þskj. 1907 og 1849, samanber framhaldsnefndarálit velferðarnefndar um málið, og játa hér með að ég hef ekki kynnt mér í þaula aðrar breytingartillögur sem hafa komið fram um málið sem komu fram nokkuð seint. Það verður ekki gagnályktað af þessu máli mínu að ég sé ekki að leggja til að þær verði samþykktar heldur myndi ég vilja skoða þær nánar. En ég efast ekki um að þær séu að mestu leyti til hins betra og hvet fólk til að skoða þær vel.
Ég tel rétt að samþykkja þetta mál. Um er að ræða mikilvægar kerfisbreytingar. Þó að ég sé að einhverju leyti ósammála þeirri nálgun að það sé forgangsatriði að koma fólki út á vinnumarkaðinn þá hef ég skilning á þeim sjónarmiðum sem þarna eru að baki. Þetta er samt sem áður að mínu mati skref í áttina að því að við förum að nálgast einstaklingana á þeirra eigin forsendum, sem fullgilda þegna í samfélaginu, óháð getu til þátttöku á vinnumarkaði. Þetta er jákvætt skref, ég fagna þessu máli en betur má ef duga skal.