154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[15:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég get ekki annað en komið hér upp í andsvar vegna atriða eða fullyrðinga sem komu fram í ræðu hv. þingmanns. Í fyrsta lagi var það a.m.k. ekki sú er hér stendur sem sagði að það væri einhver hópur sem væri nú þegar búinn að fá svo miklar hækkanir að hann ætti ekki að fá hækkanir núna. Ég var einfaldlega að draga það fram að þau sem eru með bestu greiðslurnar og verða með í breyttu kerfi eru aðeins yfir lágmarkslaunum. Ég er ekki að halda því fram að það séu háar greiðslur. Ég er að setja tölur í samhengi. Það eru hins vegar allt of mörg í núverandi kerfi sem eru með greiðslur þar langt undir og það eru sérstaklega þau sem koma til með að hækka með þeim breytingum sem hér er verið að leggja fram. Mér finnst það mikilvægt því að það er fólk sem býr við sárafátækt. Því vildi ég halda til haga.

Í öðru lagi langar mig að benda á að ég gat ekki heyrt betur en hv. þingmaður væri að leggja það til að ríkisstofnun fari af stað með vinnu, þ.e. Tryggingastofnun, við að gera breytingar án lagastoðar. Slíkt gengur auðvitað ekki upp. Til þess að hægt sé að undirbúa kerfisbreytingar og gera eitthvað þá þarf auðvitað að vera stoð fyrir því í lögum. Þess vegna skiptir máli að samþykkja þetta frumvarp þó svo að það komi ekki til framkvæmda fyrr en seinna því að ríkisstofnanir og aðrar stofnanir vinna samkvæmt stoð í lögum.