breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Þeir sem ekki fá hækkun, jú, af því að þeir eru kannski komnir aðeins yfir lágmarkslaun en því hefur verið haldið fram og er staðreynd að það eru mjög fáir í þessari aðstöðu. En af hverju í ósköpunum, ef þeir eru svona fáir og kosta lítið, fá þeir þá ekki bara sömu hækkun? Af hverju mega þeir það ekki? Einhverra hluta vegna eru þeir með þessa tölu. Ég segi fyrir mitt leyti að ég get ekki skilið það að ef þú ert með 500.000 kr. og einhver annar er með 300.000 kr. þá þurfi þessi með 300.000 kr. að fá 500.000 kr. en hinn eigi ekki að fá neitt. Það eru engin rök. Eins og ég sagði, þetta er alveg nákvæmlega það sama og að segja að af því að ráðherrar eru með hærri laun en þingmenn þá eigi ráðherrar ekki að fá ekki neitt, bara við eigum að fá. Þetta stenst ekki.
En tölum um lög, að Tryggingastofnun geti ekki farið að undirbúa þetta kerfi. Það getur vel verið að Tryggingastofnun geti það ekki lagalega séð en ég segi fyrir mitt leyti að Tryggingastofnun hefur verið og er refsistofnun. Tryggingastofnun á að vera stofnun sem hugsar um skjólstæðinga sína en því miður er búið að byggja þetta kerfi þannig upp að lögin eru yfirleitt alltaf túlkuð þeim í óhag sem eru í kerfinu. Það er alltaf túlkað ríkinu í hag. Það er enginn vandi að undirbúa þetta og ég hef enga trú á því að þeir þurfi allan þennan tíma til að undirbúa þetta. Það er verið að keyra þetta áfram með miklum látum og ég trúi ekki öðru en að þeir hefðu alveg getað gert þetta og mun betur í haust. Við hefðum getað klárað þetta þá og farið alveg í saumana á þessu og rætt vel og endilega. (Forseti hringir.) Þá værum við ekki að deila um þessa hluti hér og nú.