breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Forseti. Þetta er ansi viðamikil breyting á lögum um almannatryggingar sem við erum að ræða en kærkomin breyting að miklu leyti. En eins og ég fór yfir í andsvörum við framsögumann áðan þá finnst mér svolítið skrýtið að það sé ekki verið að tækla undirliggjandi vandann í lögunum sem gerir það að verkum að eins vel upp sett og þau voru til að byrja með, og eru kannski núna, þá grefur það undan kerfinu eftir því sem árin líða ef upphæðirnar halda ekki í við launaþróun, eins og er í rauninni gert ráð fyrir. Þetta er kerfislægur galli sem gerir það að verkum að hversu vel sem öllu er stillt upp varðandi kjarahópa eða hin og þessi réttindi þá skemmir það kerfið ef upphæðirnar eru einfaldlega ekki nothæfar fyrir fólk. Og í staðinn fyrir að það þurfi síðan einhverjum 20 árum seinna að uppfæra það, einfalda þetta aftur og eitthvað svona fram og til baka, þá hefði í rauninni dugað að passa að upphæðirnar í öllum flokkunum myndu fylgja launaþróun eins og búist er við samkvæmt orðanna hljóðan í 62. gr. laganna, fyrrverandi 69. gr., þar sem upphæðirnar eiga að fylgja launaþróun þó að þær eigi að lágmarki að hækka um verðbólguþróun.
Staðan er sú að bætur almannatrygginga hafa hækkað umfram verðlagsþróun frá árinu 1997/1998 þegar þeirri grein var bætt inn í lögin — umfram verðlagsþróun sem er bara mjög gott og kemur í rauninni til móts við þau viðmið í lögunum. En hitt viðmiðið, launaþróunin, það er aðeins flóknara. Eftir því sem við komumst næst þá segir fjármálaráðuneytið einfaldlega: Já, launaþróun, það er einhver tala sem við giskum á út frá einhverjum kjarasamningum sem við höfum hjá okkur, hvernig prósentur eru að þróast þar o.s.frv. Sú tala hefur einmitt verið mun hærri en verðlagsþróun. Það er þessi aukning á ráðstöfunartekjum sem er alltaf verið að monta sig af. Þegar ágiskun um þróun launa hjá fjármálaráðuneytinu er ítrekað lægri heldur en raunveruleg launaþróun þá verður til þessi gjá, þessi kjaraskerðing fólks sem er á almannatryggingum. Eftir rúmlega 20 ár er staðan núna sú að bætur þyrftu að vera eitthvað um 60% hærri til þess að hafa haldið í við launavísitölu, sem er í rauninni eina opinbera mælieiningin á þróun launa þegar allt kemur til alls. Önnur vísitala sem er tiltölulega nýtilkomin, en við fáum hins vegar ekkert rosalega góðan aðgang að henni, er í rauninni þróun launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem Hagstofunni er gert að reikna fyrir næstliðið ár. Þá er bara tekið tillit til þróunar launa á opinberum markaði, þ.e. hjá opinberum starfsmönnum. Laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna eiga að hækka um það sama og þróun meðallauna opinberra starfsmanna. Laun samkvæmt almannatryggingum eiga að hækka samkvæmt launaþróun á almennum markaði — ekki á opinberum markaði heldur á almennum markaði. Það er smá munur þarna á milli. Eins og ég sagði áðan er launaþróun á almennum markaði mun hærri, miðað við launavísitölu alla vega, heldur en þróunin hefur verið vegna 62. gr.
Það sem ég vil benda á er að hversu gott sem þetta frumvarp er, og segjum að það sé algerlega gallalaust og búið að uppfæra upphæðir í eitthvað sem er þolanlegt, eitthvað sem er nægjanlegt, þá mun það verða gallað strax eftir fyrstu fjárlögin, sem líta þannig á að verkefnið sé að hækka eftir spáðri launaþróun fjármálaráðuneytisins fyrir næsta ár, eða þarnæsta ár þar sem lögin taka ekki gildi fyrr en á næsta ári. Í þeim fjárlögum er sagt: Já, launaþróun, við giskum á að hún sé svona 3,5%. En raunin verður síðan 5%, eitthvað því um líkt. Þar erum við komin með kjaragliðnun. Það er fyrsta kjaragliðnunin sem endurtekur sig síðan ár eftir ár þangað til við erum að lokum komin með 60% kjaragliðnun og segjum: Heyrðu, kerfið er ómögulegt. Við þurfum að semja ný almannatryggingalög. Aftur væntanlega, ef við lögum ekki þann galla að greina raunverulega ekki launaþróun, eins og við gerum fyrir kjör kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna — þar reiknum við einfaldlega eftir á hver hækkunin var í raun og veru. Það sem væri rétt í þessu væri í rauninni að spá fyrir um framtíðina eins og er gert núna og segja: Allt í lagi, það er 4% launahækkun á næsta ári, gerum 4% launahækkun. Í næstu fjárlögum þar á eftir spyrjum við síðan: Höfðum við rétt fyrir okkur eða ekki? Ef við höfðum rangt fyrir okkur þá leiðréttum við það áður en við bætum við launaþróun fyrir næsta ár þar á eftir. Við höfum gert þetta varðandi verðbólguna á undanförnum árum. Það hefur verið vanspáð um hver verðbólguþróunin yrði og við höfum leiðrétt það, meira að segja stundum tvisvar á ári, en þá aftur samkvæmt verðbólguþróuninni en ekki samkvæmt þróun á launavísitölu en að vísu hefur verðbólgan í þessum tilfellum yfirleitt verið svo há að hún hefur verið hærri en launaþróun.
Þetta er vandinn sem við stöndum frammi fyrir þegar við samþykkjum þessi lög: Já, ókei, frábært, það er búið að einfalda kerfið og ýmislegt svoleiðis og búið að setja það upp á voðalega fínan hátt en undirliggjandi er samt þessi galli á því hvernig við uppfærum tölurnar. Og sá galli er eitthvað sem kemur til með að skemma kerfið ef við lögum þetta ekki. Við Píratar höfum við verið með frumvarp um að taka greinina um kaup og kjör kjörinna fulltrúa og æðstu ráðamanna eins og hún er og setja hana einfaldlega í lögin um almannatryggingarnar nema bæta við einni lítilli setningu sem gerir það að verkum að taka eigi tillit til krónutöluhækkana í kjarasamningum. Ef það eru krónutöluhækkanir fyrir fólk sem er á lægstu launum skiptir rosalega miklu máli að krónutöluhækkunin gildi líka fyrir almannatryggingar, af því að það er alltaf hægt að útfæra krónutöluhækkun á almennum markaði sem einhverja prósentu. Þannig er það í rauninni umreiknað í vinnu fjármálaráðuneytisins. Krónutöluhækkun yfir allan markaðinn, sem sagt fyrir fólk á lægstu launum, er ekkert rosalega há prósenta fyrir allan markaðinn og með því að setja þá prósentu á almannatryggingar verður aftur til kjaragliðnun á milli almannatrygginga og þeirra sem eru á lægstu launum. Það er ekki boðlegt. Ef það er hægt að nota þessa reiknireglu fyrir kjörna fulltrúa þá er hægt að nota þessa reiknireglu fyrir almannatryggingar.
Hin pælingin er þá einfaldlega að snúa þessu við, að taka núverandi 62. gr., af því við erum að glíma við uppfærslu á lögum um kaup og kjör kjörinna fulltrúa, að taka 62. gr. og setja hana fyrir þingmenn og ráðherra. Þá getum við kannski fundið það á eigin skinni hversu sniðug sú reikniregla er. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að hafa sömu reikniregluna fyrir þessa tvo hópa því að ég held að það sé eina leiðin til að fá einhverja sanngjarna uppfærslu á tölunum í almannatryggingum. Það er mín tillaga til framtíðar.