lögreglulög.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti og breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996.
Meginbreytingar frumvarpsins lúta að starfi lögreglu í þágu afbrotavarna og er þeim ætlað að skýra og styrkja heimildir lögreglu til aðgerða. Samhliða því er eftirlit með störfum lögreglu eflt með því að mæla fyrir um að starfrækja skuli innra gæðaeftirlit með störfum lögreglu og kveða á um starfsemi stýrihóps um skipulagða brotastarfsemi. Þá er með frumvarpinu lagt til að lögfesta sérstakt ákvæði og lagastoð fyrir nánari reglum um meðferð og notkun vopna hjá lögreglu, auk fleiri breytinga sem snúa m.a. að því að skerpa á ákvæði laganna um móttöku erlends lögregluliðs.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að fyrir nefndinni var rætt um tilefni og markmið frumvarpsins en það felur í sér tiltekin nýmæli um heimildir lögreglu til afbrotavarna. Í slíkum heimildum felst geta lögreglu til að bregðast við og grípa til aðgerða áður en grunur er um að einstök brot hafi verið framin. Fyrir nefndinni kom fram að eðli löggæslu hefði tekið miklum breytingum á undanförnum árum, þ.e. störf lögreglu fælust að miklu leyti í upplýsingaöflun og greiningu upplýsinga vegna breytts afbrotamynsturs, aukinnar hættu á hryðjuverkum og alþjóðlegrar skipulagðrar brotastarfsemi.
Nefndin fjallaði um heimildir lögreglu samkvæmt frumvarpinu og samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, en ákvæði frumvarpsins varða takmarkanir á rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og lög um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994. Meiri hlutinn telur að heimildir lögreglu til afskipta af borgurunum séu afmarkaðar með frumvarpinu og háðar skýrum skilyrðum auk þess að sæta eftirliti. Fyrir nefndinni var m.a. bent á að á stjórnvöldum hvíli annars vegar neikvæðar skyldur til að koma í veg fyrir að brotið sé á mannréttindum borgara. Hins vegar hvíli á stjórnvöldum jákvæðar skyldur um að grípa til aðgerða til að tryggja mannréttindi. Þær jákvæðu skyldur geti sem slíkar verið brotnar ef lagaumhverfið er of veikt til að takast á við almannahættu.
Nefndin fjallaði ítarlega um heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, aðgerða til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi og afbrotavarna í þágu öryggis ríkisins. Nefndin fjallaði að auki um mikilvægi eftirlits með störfum lögreglu. Með frumvarpinu er kveðið á um að starfræktur skuli stýrihópur um skipulagða brotastarfsemi sem hafi það hlutverk að tryggja samræmingu lögreglu á landsvísu til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi og efla samvinnu og upplýsingaskipti á milli lögregluembætta.
Þá var fyrir nefndinni rætt um innra og ytra eftirlit með lögreglu. Með frumvarpinu er kveðið á um að ríkislögreglustjóri skuli starfrækja innra gæðaeftirlit með störfum lögreglu. Hlutverk þess verði að stuðla að bættri löggæslu og hafa eftirlit með að lögregla starfi í samræmi við lög og verklagsreglur. Gert er ráð fyrir að gæðastjóri lögreglu sé sjálfstæður í störfum sínum og að innra gæðaeftirlit lögreglu starfi sem sjálfstæð eining innan embættis ríkislögreglustjóra. Með stofnun embættis gæðastjóra sem hefur á hendi miðlægt innra eftirlit uppfylli stjórnvöld einnig alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir með þátttöku í samtökum ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu eða GRECO.
-Nefndin fjallaði jafnframt um mikilvægi ytra eftirlits með störfum lögreglu. Mikilvægt sé að halda áfram að vinna að því að efla nefnd um eftirlit með lögreglu og tryggja að hún geti sinnt hlutverki sínu, m.a. að tryggja að nefndinni berist þau gögn sem hún þarf til að sinna hlutverki sínu.
Þá fjallaði nefndin um vinnslu persónuupplýsinga en með vísan til þeirra umfjöllunar telur meiri hlutinn skýrt að lög nr. 75/2019, um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi, eiga við um alla upplýsingaöflun lögreglu samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að mat á áhrifum persónuverndar skv. 26. gr. laga nr. 75/2019, fari fram hjá lögregluembættum landsins.
Þá leggur meiri hlutinn leggur til breytingar sem gerð verður nánari grein fyrir en vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar í nefndaráliti meiri hlutans.
Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu: Lögð er til breyting á b-lið 6. gr. um aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi, þ.e. 15. gr. b. Meiri hlutinn leggur til breytingu á ákvæðinu með það að markmiði að afmarka nánar heimildir lögreglu til að viðhafa eftirlit með einstaklingum með því að skilgreina nánar aðkomu stýrihóps um skipulagða brotastarfsemi og leggja til strangari skilyrði þess að viðhafa eftirlit í lengri tíma. Með breytingartillögu meiri hlutans á ákvæðinu verður hnykkt á því að sá lögreglustjóri sem ber ákvörðun um eftirlit með einstaklingi undir stýrihóp um skipulagða brotastarfsemi skuli ekki taka þátt í afgreiðslu málsins á vettvangi stýrihópsins.
Við umfjöllun nefndarinnar um málið var rætt um fyrirkomulag eftirlits þegar það er viðhaft í lengri tíma. Grundvallarreglan verður ávallt sú að ekki skuli viðhafa eftirlit lengur en nauðsynlegt er. Meiri hlutinn leggur til að verði nauðsynlegt að viðhafa eftirlit umfram fjórar vikur þá skuli lögreglustjóri taka ákvörðun um framlengingu eftirlits og bera hana á ný undir stýrihópinn til staðfestingar eða synjunar. Komi til þess að einstaklingur sé undir eftirliti á grundvelli ákvæðisins lengur en fjóra mánuði í senn, þ.e. án þess að grunur liggi fyrir um afbrot, þá skuli bera ákvörðun lögreglustjóra undir héraðsdóm til staðfestingar.
Með hliðsjón af þeim breytingum sem eru lagðar til er jafnframt lagt til að ríkissaksóknara verði falið eftirlit með heimildum lögreglu. Allar ákvarðanir skuli skráðar í kerfi lögreglu og tilkynntar til ríkissaksóknara eins fljótt og kostur er.
Í öðru lagi er lögð til breyting á c-lið 6. gr. um afbrotavarnir í þágu öryggis ríkisins, þ.e. 15. gr. c. Til samræmis við breytingar á 15. gr. b leggur meiri hlutinn jafnframt til breytingar á 15. gr. c sem varða heimildir lögreglu til eftirlits með einstaklingi sem lögregla hefur áreiðanlegar upplýsingar um að kunni að stafa sérgreind hætta af fyrir öryggi ríkisins eða almennings. Með breytingunni verði kveðið á um að sé einstaklingur undir eftirliti lengur en fjóra mánuði skuli bera ákvörðun lögreglustjóra undir héraðsdóm.
Þá eru lagðar til breyting er varða skyldu til að tilkynna viðkomandi um aðgerðir, þ.e. b- og c-liður 6. gr. Með breytingu á 15. gr. d frumvarpsins sem varðar útfærslu á eftirliti er fallið frá því að fela nefnd um eftirlit með lögreglu heimild til að beina því til lögreglustjóra að tilkynna viðkomandi að hann hafi sætt eftirliti ef það er afstaða nefndarinnar að aðgerðir lögreglu hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna. Þess í stað er lagt til að í 15. gr. b og 15. gr. c verði kveðið á um að þegar eftirlit með einstaklingi á grundvelli ákvæðanna er lokið skuli lögregla tilkynna þeim sem eftirlitið beindist að um það án tafar nema ríkir hagsmunir standi því í vegi er varða afbrotavarnir, rannsókn sakamála, öryggi ríkisins eða samskipti við erlend ríki. Með ríkum hagsmunum er einkum átt við þau tilvik þegar það er metið sem svo að tilkynning muni valda spjöllum á rannsókn sakamáls, aðgerðum í þágu afbrotavarna eða sé líkleg til að hafa áhrif á hagsmuni tengdum öryggi ríkisins eða samskiptum við erlend ríki. Þá er ríkissaksóknara m.a. falið að hafa eftirlit með því að lögregla tilkynni þeim sem aðgerðir beindust að þegar það á við.
Að lokum er lögð til breyting er varðar endurskoðun á framkvæmd heimilda lögreglu. Meiri hlutinn leggur til að kveðið verði á um það að innan þriggja ára frá gildistöku laganna skuli endurskoða framkvæmd vegna ákvæða b-, c- og d-liðar 6. gr. frumvarpsins, þ.m.t. varðandi dómsúrskurð. Skal dómsmálaráðherra skipa sérfræðinefnd til að leggja mat á reynslu af beitingu ákvæðanna sem skal skipuð af fulltrúum nánar tilgreindra aðila.
Með vísan til þess að með frumvarpinu er kveðið á um nýjar heimildir lögreglu sem og með hliðsjón af þeim breytingum sem lagðar eru til við frumvarpið til að koma til móts við sjónarmið sem fram komu við umfjöllun nefndarinnar um málið þá telur meiri hlutinn brýnt að farið verði í ítarlega endurskoðun innan tilgreinds tíma. Mikilvægt sé að leggja mat á fyrirkomulagið og beiting ákvæðanna rýnd að ákveðnum tíma liðnum með hliðsjón af fenginni reynslu. Í því sambandi er nauðsynlegt að m.a. verði skoðað hve oft lögregla hefur tekið ákvörðun um eftirlit með einstaklingi, í hvaða tilgangi, hversu lengi það hefur að jafnaði staðið yfir, hver reynslan er af því fyrirkomulagi að krefjast dómsúrskurðar í tilteknum tilvikum og hvernig eftirlit af hálfu ríkissaksóknara hefur verið háttað. Þá skal jafnframt lagt mat á það hvort og þá með hvaða hætti aðgerðir lögreglu hafa náð því markmiði sem að er stefnt, þ.e. að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi og að viðhafa afbrotavarnir í þágu öryggis ríkisins.
Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndaráliti meiri hlutans.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til á sérstöku þingskjali.
Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bergþór Ólason, Eyjólfur Ármannsson, með fyrirvara, Dagbjört Hákonardóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir. Bergþór Ólason var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið skv. heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Sigmar Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur álitinu.
Frú forseti. Hér var ég að fara yfir nefndarálit okkar um ofboðslega mikilvægt mál. Þetta er mál sem hefur verið til umfjöllunar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd í töluverðan tíma. Á síðasta þingi kom þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, fram með frumvarp um auknar heimildir til lögreglunnar. Nefndin varði töluvert miklum tíma á síðasta þingi í að vinna það mál en því miður náðist ekki að klára það á því þingi. Það kom svo inn núna þegar hæstv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, mælti fyrir því og þá með mikið af þeim breytingum sem ræddar höfðu verið í nefndinni á síðasta þingi. Það er nú samt svo að enn voru uppi sjónarmið er lutu að frelsi einstaklingsins og heimildum lögreglu og ég hygg að þær breytingar sem ég mæli hér fyrir séu af hinu góða til að ná utan um þessi mismunandi sjónarmið. Það er þá einna helst það að ef eftirlit lögreglu hefur varað í fjóra mánuði eða lengur þá þarf að fara með það fyrir dóm. Það er líka skrifað inn eftirlit ríkissaksóknara sem nú þegar hefur eftirlit með ýmsu í störfum lögreglu og ég held að það fari vel á því að eftirlit með þessum heimildum verði líka hjá ríkissaksóknara. Svo er það það sem ég tel kannski einna mikilvægast, endurskoðunarákvæðið, að innan þriggja ára þá þurfum við að fara yfir þetta og kanna hvernig þessar heimildir hafa nýst lögreglunni, hvernig hún hefur farið með það og hvernig eftirliti hefur verið háttað og líka hvort raunverulega sé þörf á þessum dómsúrskurði
Frú forseti. Ég vil ítreka það að ég held að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða og við heyrum það á máli lögreglunnar sem hefur heimsótt okkur út af þessu frumvarpi. Við heyrum það líka úti í samfélaginu hversu brýn þörf er á að ráðast í, ég ætla ekki að nota orðið stríð, en ráðast í miklar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Því miður er það svo að skipulögð brotastarfsemi hefur náð fótfestu á Íslandi og það er þar af leiðandi hlutverk okkar að vernda borgarana og þess vegna nauðsynlegt að lögreglan hafi bæði þær heimildir og þau tæki og tól sem hún þarf til að ná utan um slíkt. — Ég hef lokið máli mínu.