154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við setjum inn breytingartillögu varðandi það að ef lögreglustjóri hyggst veita leyfi fyrir eftirliti umfram fjóra mánuði þá þarf að fara með það fyrir dómara. Það var ekki svoleiðis í frumvarpinu eins og það kom inn. Það hefur almennt verið bæði skilningur ráðuneytisins og míns reyndar að það væri ekki þörf á dómsúrskurði í svona málum. Þetta eru heimildir um ákveðna vöktun á einstaklingum í opnu rými, á opnum vefsvæðum. Þetta eru ekki þvingunarheimildir, þetta lýtur ekki að hlerunum eða haldlagningu gagna eða annars þess háttar. Það er mjög mikilvægt að við höfum það í huga. Slíkt þarf alltaf að fara með fyrir dómara. En niðurstaðan var þessi og þá horfum við þannig á það að þetta séu almennt ekki mjög íþyngjandi ákvæði fyrir einstaklinga. En auðvitað verður að viðurkenna það að ef eftirlitið hefur staðið í langan tíma þá hlýtur það að vera meira íþyngjandi. Það hlýtur að vera meira íþyngjandi ef þú ert farinn að fylgjast með einhverjum í fjóra, fimm eða sex mánuði heldur en kannski tvo eða þrjá daga. Það sem dómari er þá að taka afstöðu til er hvort upplýsingarnar séu áreiðanlegar sem á þessu byggja og það sé þessi tenging við skipulagða brotastarfsemi. Það er ekki hægt að fara að fylgjast með einhverjum út af því að lögguna langar að fylgjast með einhverjum, það þurfa að liggja fyrir áreiðanlegar upplýsingar og það er ágætlega skilgreint hvað áreiðanlegar upplýsingar eru. Það kann til að mynda vera ábending frá lögregluyfirvöldum á öðrum Norðurlöndum eða einhvers staðar erlendis frá. Það þarf líka að vera tenging við skipulagða brotastarfsemi og það er líka skilgreint í lögunum og er þekkt skilgreining á því. Það er það sem dómari er fyrst og fremst að taka afstöðu til.

Ég held ég verði að fara betur yfir nefnd um eftirlit með lögreglu í seinna andsvarinu mínu en við ítrekum mikilvægi þess að efla þá nefnd þótt nú sé fallið frá þessum greinum sem lúta að henni, ég fer betur yfir það á eftir.