lögreglulög.
Forseti. Það er auðvitað mjög leiðinlegt að heyra hv. þingmenn gera lítið úr því eftirliti sem þarna er verið að leggja til, að lögreglan hafi heimild til að hafa eftirlit með almennum borgurum sem hafa ekkert af sér gert og ekki leikur grunur á að þeir ætli sér að gera það. Ég verð að vera ósammála hv. þingmanni um að það sé skýrt hvað áreiðanlegar upplýsingar þýða. Það kemur hvergi fram. Það er ekki skilgreint. Það er eitthvað sem hefur verið skýrt í einhverjum svona tillögum í samtölum í nefndinni en það er hvergi skilgreint hvað áreiðanlegar upplýsingar eru. Í öðru lagi eru það tengsl við skipulagða glæpastarfsemi og hver þau gætu verið. Það gæti verið að nágrannabarn mitt sé að selja gras. Þetta er óskýrt. Þetta er gríðarlega víðtækt og þetta er ekki vegna þess að viðkomandi einstaklingur sem fylgst er með sé grunaður um eitt eða neitt eða grunaður um að ætla sér að gera eitthvað. Ég vil leggja áherslu á að það er gríðarlega víðtæk heimild.
Í ofanálag þá er það að fylgjast með einstaklingi á almannafæri mjög mikið. Lögreglunni er falið mjög mikið vald þarna. Það er hægt að túlka þessi ákvæði þannig að lögreglan gæti óskað eftir upptökum úr öllum myndavélum. Það er fylgst með okkur núna alls staðar. Hver einasti rafbíll meira og minna er með myndavélar sem fylgjast með ferðum okkar. Það má túlka þessi ákvæði þannig, eins og þeim er stillt upp, að lögreglan geti fylgst með einstaklingi og kortlagt ferðir viðkomandi um alla borg, um allan bæ, það er talað um á almannafæri. Og þó að það sé á almannafæri þá er það að fylgjast með ferðum fólks gríðarlega mikið inngrip í friðhelgi einkalífs. Þess vegna finnst mér miður að heyra hv. þingmenn gera lítið úr þessu. Ég get alveg haft skilning á því að í einhverjum tilvikum gæti verið þörf á eftirliti af þessu tagi en þá er bara eðlilegt að við því séu varnaglar sem ég mun fara betur yfir í ræðu minni hér á eftir.
En ég hlakka til að heyra svar hv. þingmanns við því hvers vegna fallið er frá því að efla nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Hv. þingmaður fer þar í mótsögn við það sem hún sagði, að það sé mikilvægt að efla nefndina. Hvers vegna er fallið frá þessum tillögum?