154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:52]
Horfa

 allsh.- og menntmn.Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Já, varðandi nefnd með eftirliti lögreglu þá var henni í frumvarpinu, eins og það kom fyrir þingið, falið mjög viðamikið verkefni hvað varðar eftirlit með þessum heimildum sem hér er verið að veita. Þar af leiðandi voru þarna lagabálkar er lutu að því að efla nefndina því hún átti að taka að sér enn meiri verkefni en hún hefur í dag. Í ljósi þess að við ákváðum að fara þá leið að fela ríkissaksóknara eftirlit með þessum heimildum sem almennt virtist vera töluverð ánægja með, líka innan nefndarinnar — þetta er eitt af því sem var svolítið gagnrýnt í allri umfjölluninni þannig að ég held að það sé góð lausn — þá blasir við að nefnd með eftirliti lögreglu er ekki að taka að sér viðameiri verkefni en hún hefur í dag. (Gripið fram í.) En það er áfram þannig að einstaklingur sem verður fyrir svona eftirliti getur alltaf leitað til nefndar um eftirlit með lögreglu þannig að það breytist ekki. En við fjöllum þar af leiðandi líka um það í nefndaráliti okkar að við þurfum að horfa til fjármögnunar ríkissaksóknara sem nú er að taka að sér viðameira verkefni með eftirliti með þessum heimildum sem hér eru.

Annars vil ég bara ítreka það sem ég hef sagt hér áður að þessar heimildir eru að mínu viti ekkert svakalega miklar. En ég átta mig á því að það eru skiptar skoðanir um það og nákvæmlega þess vegna náðum við utan um það með þessum breytingartillögum sem hér liggja fyrir. Það er vel skilgreint í störfum lögreglu hvað teljast áreiðanlegar upplýsingar og við höfum rætt það vel á fundum okkar og farið yfir þetta með ráðuneytinu og lögreglunni. Eins hvað varðar skipulagða brotastarfsemi, ég bara fann það ekki í fljótu bragði hérna í frumvarpinu, en það er skilgreining á því og það er ekki bara að einhver unglingspiltur sé að selja gras. Það er ekki skipulögð brotastarfsemi. Við erum að tala um allt öðruvísi mál. Þegar við horfum til nágrannaríkja okkar er ljóst að lögreglan þar hefur víðtækari heimildir en lögreglan á Íslandi og við því er nauðsynlegt að bregðast og það gerum við hér með þessu frumvarpi.