154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:55]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Frumvarp þetta snýst um að veita lögreglu heimild til að stunda bæði almennt eftirlit á almannafæri og sértækt eftirlit með einstaklingum án þess að grunur liggi fyrir um að þeir hafi framið afbrot né að það standi til og án þess að dómsúrskurður liggi fyrir. Slíkar heimildir hafa lengi verið til umræðu og hafa ýmist verið kallaðir afbrotavarnir eða forvirkar rannsóknarheimildir. Lögreglan hefur nú þegar víðtækar og íþyngjandi heimildir til að takmarka frelsi einstaklinga, sérstaklega þegar grunur liggur fyrir um að einstaklingur hafi brotið af sér. Að yfirfæra þær heimildir í ríkari mæli yfir á einstaklinga sem eru ekki grunaðir um afbrot felur í sér mjög íþyngjandi inngrip í réttindi borgaranna. Slíku inngripi þarf að færa mjög sterk rök fyrir og það er algjört grundvallaratriði að slíku inngripi fylgi virkt og sjálfstætt eftirlit.

Heimildir frumvarpsins til eftirlits með almenningi eru mjög víðtækar. Ekkert ytra eftirlit er með þeim fyrr en að aðgerðum loknum og þá er það eftirlit ekki sjálfstætt frá framkvæmdarvaldinu. Öflun upplýsinga í öllum störfum lögreglu og greiningar á þeim eru því sem næst takmarkalausar og engin ákvæði að finna um hversu lengi lögreglu er heimilt að geyma þau gögn. Einnig er óljóst hversu lengi einstaklingar megi vera undir sértæku eftirliti. Þau sjónarmið komu fram hjá gestum nefndarinnar að ekki væri rétt að bera undir dómstóla ákvarðanir um sértækt eftirlit með einstaklingum því að dómstólar gætu ekki haft þá yfirsýn yfir landslag skipulagðrar glæpastarfsemi sem stýrihópur lögreglu myndi hafa. Hefðbundnar rannsóknaraðferðir hefðu ekki virkað nægilega vel í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi. Sem dæmi mætti nefna að með því að horfa aðeins á einstaka brot enduðu burðardýr ólöglegra vímuefna oftar en ekki í fangelsi. Frumvarpið væri því tilraun til að ná utan um víðara samhengið.

Forseti. Það er augljóst að tilgangur greinargerðar frumvarpsins er að renna stoðum undir þessi sjónarmið frekar en að gefa heiðarlega mynd af fyrirkomulaginu t.d. í nágrannaríkjum okkar. Í greinargerðinni segir að heimildir frumvarpsins séu í efnislegu samræmi við þær heimildir sem lögregla annars staðar á Norðurlöndunum hefur yfir að ráða. En þegar nánar er skoðað þá er þetta ekki rétt. Upplýsingarnar sem birtar eru í greinargerðinni eru valdar af hentisemi og gefa því mjög skakka mynd af fyrirkomulaginu á Norðurlöndunum. Sem dæmi má nefna að norska öryggisþjónustan, PST, rannsakar brot gegn öryggi ríkisins en ekki er tekið fram í greinargerðinni að til að beita þvingunarúrræðum til forvarna, svo sem rafrænu eftirliti eða myndavélaeftirliti, þarf PST-úrskurð dómara. Sænska öryggislögreglan, SAFO, hefur iðulega rannsakað brot er snúa að öryggi ríkisins en almennri lögreglu hefur nú einnig verið heimilað að beita slíkum ákvæðum. Í greinargerðinni kemur hins vegar ekki fram að sænska lögreglan þarf að afla úrskurðar dómara til að beita ákvæðum laga um aðgerðir til að koma í veg fyrir alvarleg brot. Ég veit ekki af hverju höfundar frumvarpsins ákváðu að sleppa jafn veigamiklum upplýsingum og kröfu um dómsúrskurð til að beita þvingunarúrræðum. Ég hefði talið að þetta skipti lykilmáli í því að upplýsa okkur nefndarmenn um málið. Þegar gögnin eru skoðuð kemur í ljós að krafan um að sértækt eftirlit komi strax til umfjöllunar dómstóla er ekki aðeins eðlileg og skynsamleg heldur einnig mun betur til þess fallin að samræma lagaheimildir á Norðurlöndunum.

Í greinargerð frumvarpsins er einnig fjallað um mál Uzun gegn Þýskalandi, mál sem fór fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna eftirlits án dómsúrskurðar. Hér eru höfundar frumvarpsins að nýta dóm um rannsóknaraðgerðir gegn manni sem liggur undir rökstuddum grun um hryðjuverk, ekki skipulagða glæpastarfsemi heldur hryðjuverk, til að réttlæta að frumvarpið sem hér um ræðir geri ekki kröfu um úrskurð dómara áður en sértækt eftirlit hefst. Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu kemur þó skýrt fram að slík ráðstöfun hafi aðeins verið réttlætanleg eftir að búið var að líta heildstætt á atvik málsins. Rökstuddur grunur um hryðjuverk er miklu alvarlegri forsenda eftirlits en efni þessa frumvarps. Það ætti að vera ljóst að samþykkt 6. gr. b og 6. gr. c þessa frumvarps skapar aðstæður sem geta hæglega orðið að umfjöllunarefni Mannréttindadómstóls Evrópu.

Aðeins um breytingartillögu meiri hlutans. Þar er verið að leggja til þá breytingu að bera sértækt eftirlit undir dómara að fjórum mánuðum liðnum. Þessi niðurstaða er stórundarleg málamiðlun og einkennandi fyrir sundrungina á stjórnarheimilinu. Dómsvaldinu er almennt ekki ætlað það hlutverk að réttlæta aðgerðir lögreglu að þeim yfirstöðnum heldur veita lögreglu heimild til skerðinga á mannréttindum einstaklinga áður en brot er framið. Ég get því ekki tekið undir þessa breytingartillögu heldur tel ég mikilvægt að standa við þá augljósu framkvæmd að úrskurð dómara þurfi til að halda úti sértæku eftirliti með einstaklingum sem ekki eru grunaðir um refsivert athæfi. Það er mikið áhyggjuefni að allt eftirlit í rauntíma eigi að fara fram innan lögreglunnar og í raun að mestu aðeins hjá aðilum sem starfa mjög náið saman. Hættan á hóphugsun og gagnrýnislausu samþykki er því mikil. Eftirlit með störfum lögreglu á að vera á hendi sjálfstæðs aðila sem er ekki hluti af framkvæmdarvaldinu og lýtur boðvaldi ráðherra.

Forseti. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að kostnaður við frumvarpið óbreytt sé rétt rúmlega 125 millj. kr. og segir að sú fjármögnun þurfi að fara fram með nýjum fjárheimildum eða, með leyfi forseta: „…með breyttri forgangsröðun fjárheimilda innan löggæslunnar.“ Á mannamáli þýðir þetta niðurskurð í almennri löggæslu við rannsókn sakamála eða öðrum stöðum þar sem mögulega er búið að fremja glæp.

Í umfjöllun nefndarinnar kom ekkert fram sem sýndi fram á að frumvarpið kæmi með nýjum fjárheimildum. Ekkert hefur komið fram við umfjöllun nefndarinnar né í fjárlögum eða fjármálaáætlun sem tryggir að þeim fjármunum verði ráðstafað til þess eftirlits sem þarf að vera til staðar svo að hægt sé að veita lögreglu heimildir til að rannsaka einstaklinga áður en þeir hafa framið glæp, hvað þá heldur ríkissaksóknara en breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar gerðu ráð fyrir að eftirlit með framkvæmd þessa frumvarps bætist við starfsskyldur hans. Þegar kemur að því að veita fjármuni til eftirlits með verklagi og verklagsreglum lögreglu má benda á það að nefnd um eftirlit með lögreglu hefur ekki fjallað um eitt einasta frumkvæðismál undanfarin fjögur ár, sem er skýr ábending þess efnis að nefndin hafi ekki úr nægum fjármunum og starfsfólki að moða nú þegar.

Það vekur því furðu að í breytingartillögum meiri hlutans stendur til að hætta við að efla nefnd um eftirlit með störfum lögreglu, eins og stóð til að gera í upprunalega málinu. Sama er upp á teningnum hvað varðar innra gæðaeftirlit lögreglu. Ekkert er vitað um hvaðan fjármunir eigi að koma eða um fjölda þeirra sem muni starfa við slíkt eftirlit. Á meðan nefndin fjallaði um þetta frumvarp lýstu Lögreglustjórafélag Íslands og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu yfir miklum áhyggjum af fjárheimildum komandi ára í fjármálaáætlun og telja líklegt að almenn löggæsla muni stórskaðast verði af niðurskurðartillögum fjármálaráðherra.

Forseti. Fyrst þarf að tryggja lögreglu fjármuni til að takast á við hlutverk sitt eins og það er skilgreint í dag. Næst þarf að tryggja fjármuni og lagalega umgjörð fyrir öflugt ytra eftirlit í rauntíma. Svo er hægt að fara að ræða af einhverri alvöru auknar heimildir til eftirlits með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Hér er öll forgangsröðunin komin á hvolf. Frumvarpið er vanbúið og verndar ekki grundvallarréttindi borgaranna. Það gerir minni kröfur um sjálfstætt eftirlit með forvirkum aðgerðum lögreglu en önnur Norðurlönd og mun á engan veg stuðla að auknu trausti til lögreglu meðal almennra borgara, þvert á móti. Og á tímum þar sem aukið traust til lögreglunnar skiptir alveg ofboðslega miklu máli — það skiptir rosalega miklu máli. Við erum að sjá mjög erfiðar fréttir koma fram trekk í trekk um hvernig lögreglan hagar sér gagnvart almenningi og núna skiptir máli að auka traust áður en við veitum henni auknar heimildir.

Að framangreindu virtu leggur sú sem hér stendur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Til vara legg ég til breytingar til lágmarksskaðaminnkunar á málinu en þær breytingar fela í sér að þrengja grundvöll eftirlits með mikilvægum orðalagsbreytingum í 6. gr. frumvarpsins og með því að tryggja aðkomu dómstóla að ákvörðun um eftirlit ásamt því að tryggja tímamörk eftirlits.