lögreglulög.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að segja að það er gott að við höfum hafið umræðu um þetta mikilvæga mál, breytingu á lögreglulögum í þágu afbrotavarna og almannaöryggis hér landi. Ég vil byrja á því að þakka hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar, Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir að leiða þessa vinnu í nefndinni og sömuleiðis öðrum nefndarmönnum í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Við fengum til okkar fjölmarga góða gesti í tengslum við þetta mál. Þó að við höfum sett það aðeins til hliðar á meðan við kláruðum önnur mál náðum við snarpri og góðri lendingu í þessu máli að mínu mati.
Ég vil koma því áleiðis að ég tel að þær breytingar sem gerðar hafa verið á efni frumvarpsins frá því að það var fyrst lagt fram séu almennt til bóta og styrki heildarumgjörð málsins með þeim hætti að ég treysti mér til að mæla með því hér og rita undir nefndarálit meiri hlutans. Þarna skiptir fyrir mér höfuðmáli að fyrir hendi sé ríkt gagnsæi um störf lögreglu. Gagnsæi er mikilvægt og ekki síst í þágu lögreglunnar sjálfrar sem þarf á trausti almennings að halda. Það er samvinnuverkefni okkar allra að það haldist. Þar leggjum við, löggjafarvaldið og fjárveitingavaldið, okkar af mörkum með því að setja lög í skýrri umgjörð þar sem ríkulega er gert ráð fyrir gagnsæi og svo hins vegar, það sem kannski er ekki til umfjöllunar hér í dag í þessu frumvarpi, þá ber okkur að tryggja nægilegt fjármagn til að það gagnsæi geti virkað sem skyldi.
Forseti. Ég ætla ekki að fara mjög djúpt efnislega í einstök atriði frumvarpsins. Ég get samt ekki látið hjá líða að ávarpa það að ég geri svo sannarlega ekki lítið úr því inngripi sem verið er að leggja til með lögunum. Á sama hátt að geri ég ekki lítið úr þeirri ógn sem stafar af skipulagðri glæpastarfsemi og sömuleiðis þeim hættum sem kunna að vera til staðar gagnvart öryggi ríkisins. Þetta tvennt helst alveg í hendur. Ef ógnin er mikil þá hlýtur inngrip auðvitað að vera til staðar að sama skapi. Ég held að það sé ábyrgðarhlutur að við horfumst í augu við það. Einna helst finnst mér samt vert að nefna það að helsta almenningsógnin í landinu, helsta ógnin gegn öryggi borgaranna, hlýtur auðvitað felast í fjárhagslegri vanrækslu að mörgu leyti á helstu innviðunum sem lúta að löggæslu.
Við búum í tiltölulega öruggu landi og við erum þakklát fyrir það. Við eigum ekki að taka því sem gefnu. Á Íslandi eru næstfæstir lögreglumenn á hverja 100.000 íbúa í Evrópu. Hér erum við í hróplegu ósamræmi við verkefnið sem höfuðborginni og nærliggjandi sveitarfélögum er falið að leysa; 1,2 lögregluþjónn á hverja 1.000 íbúa hér á höfuðborgarsvæðinu. Birtingarmyndin er önnur á landsbyggðinni. Fjöldinn segir þó aðeins hálfa söguna því að það eru gífurlegar áskoranir fólgnar í því að sinna stórum landshlutum sem sumir hverjir hafa ekki sólarhringsvakt. Það er mjög mikilvægt að huga vel og vandlega að afbrotavarnahlutverki lögreglu en þjónustuhlutverkið skiptir líka mjög miklu. Þegar við tryggjum mönnun þá tryggjum við málsmeðferðartímann, tryggjum að hann sé stuttur og sömuleiðis viðbragðstíminn. Við tryggjum líka lögreglufólk á vettvangi. Við kölluðum eftir því að við tryggjum forsvaranlega fjármögnun inn í þessar stéttir. Það skiptir máli að fólk sem leggur sig í hættu við að sinna útköllum í öllum aðstæðum finni fyrir því að það sé í forgangi hjá fjárveitingavaldinu. Áhættan sem lögreglufólkið okkar tekur á hverjum degi þegar það fer á vaktina endurspeglast ekki í launum þess. Ef við viljum hæft fólk í framlínuna þá þurfum við að sýna ábyrgð og hætta að taka því sem gefnu að lögreglufólk ani út í óöruggar aðstæður. Afleiðingin af undirfjármögnun og fámenni getur nefnilega birst í því að meðalhóf á vettvangi í hættulegum aðstæðum verður sífellt vandrataðri vegur. Það er þráðbeint samhengi á milli öryggis framlínulöggæslufólks í starfi og öryggis borgaranna sem þurfa á þjónustu og hjálp að halda og þeirra sem verða fyrir afskiptum. Sé starfsaðbúnaður slæmur eykst alltaf hættan á óþarfri valdbeitingu og við fáum líka — og þetta er mikilvægt — við fáum einsleitari hóp fólks til starfa fyrir lögregluna.
Forseti. Ég vil segja eitt örsnöggt um hlutverk lögreglunnar í nútímasamfélagi. Við höfum á liðnum misserum orðið vör við umræðu sem ber þess merki að lögreglumenn séu fulltrúar valdsins, að það beri að nálgast auknar heimildir þeirra til að sinna sínum störfum af gagnrýni og af mikilli varfærni. Ég get tekið undir það að hluta. Það er mín skoðun að almenningur eigi að geta treyst lögreglunni. Nýlegar viðhorfskannanir sýna að slíkt traust er til staðar. Og við eigum að rækta þetta traust. Ég verð að ítreka að það gerum við ekki öðruvísi en með því að tryggja fjármögnun, með skýrum og fyrirsjáanlegum lagaramma og sátt um eftirlitsskyldur til þess bærra aðila, hvort sem það er innra eftirlitið eða ytra. Þar verðum við auðvitað að tryggja að eftirlitsaðilar hafi skýran aðgang að þeim gögnum sem þeir þurfa á að halda til að geta rækt hlutverk sitt, ekki síður en fjármagni. Það hefur ágerst núna á undanförnum árum að orðið hafi til einhvers konar ósýnilegir veggir í tengslum við flæði upplýsinga frá lögreglu annars vegar og þeirra sem sinna annaðhvort ytra eða innra eftirliti. Við getum ekki látið þetta viðgangast.
Ég ætla að því sögðu að segja að í fyrirliggjandi nefndaráliti er vissulega lögð áhersla á að auknum heimildum lögreglu þurfi jafnframt að fylgja ábyrgð og eftirlit. Þá ætla ég að nota tækifærið og skerpa á því að í ljósi þess að embætti ríkissaksóknara er hér falið að taka að sér ný verkefni þá verður, — ég endurtek og bendi til þess sem segir í nefndarálitinu — það verður að leggja mat á þörf viðbótarfjármögnunar í embætti ríkissaksóknara til að hann geti sinnt slíkum störfum sómasamlega, enda höfðu fjárlög fyrirliggjandi árs gert ráð fyrir aðhaldskröfu á embættið sem átti að öðru óbreyttu að leiða til niðurskurðar sem jafngilti einu stöðugildi.
Aftur vík ég að mikilvægi þessara verkefna sem hér liggja fyrir til samþykktar, sem eru afbrotavarnir, sem eru rannsóknarheimildir lögreglu gagnvart skipulagðri brotastarfsemi eða ógn gegn öryggi ríkisins. Eftirlit ríkissaksóknara verður að öllum líkindum ákaflega umfangsmikið og við eigum ekki vanmeta það, ekki síst ef hinu opinbera er mjög mikið í mun að traust ríki um þessar heimildir og störf lögreglu almennt. Ef það er skoðað í þessu samhengi hverjir bera minnst traust til lögreglu og hennar starfa þá er það einmitt frekar yngra fólk, á aldrinum 18–25 ára. Þetta sýnir okkur hve mikilvæg verkefni eins og samfélagsleg lögregla og önnur svæðatengd og hverfistengd verkefni eru. Þessi verkefni hafa fengið að finna fyrir niðurskurðarhnífnum. Það er kannski ekki viðfangsefni okkar í dag en ég má til með að koma því á framfæri hversu mikil eftirsjá er af þessum verkefnum og ég hvet hæstv. dómsmálaráðherra til að gera bragarbót þar á.
Aðeins um frumvarpið í lokin. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór almennt yfir ákvæði þess hér áðan. Ætlunin er að veita lögreglu skýrt afmarkaða heimild til afskipta af borgurunum. Meðalhóf og útfærsla á því í reynd skiptir öllu máli. Ég vil samt nota tækifærið til að segja að það er ánægjulegt hversu miklum breytingum ákvæðin hafa tekið við meðferð málsins og það er líka ánægjulegt að þegar við vorum að fara í gegnum umfangsmiklar breytingar á ákvæðum sem þessum náðum við þrátt fyrir allt að eiga viðbótarsamráð við helstu hagsmunaaðila og fagna ég því að við náðum að koma því við. Lögreglu ber núna skylda til að tilkynna hinum skráða um eftirlitsaðgerðir samkvæmt stafliðum 6. gr. frumvarpsins sem verður að stafliðum 15. gr. lögreglulaga. Ég tel þetta ákaflega jákvætt skref. Ríkissaksóknara er sem fyrr segir falið að hafa eftirlit með þessum aðgerðum sem og að tilkynningarskyldunni hafi verið sinnt. Líka er mikilvægt að árétta að Persónuvernd er jafnframt falið að hafa aðkomu að sama eftirliti um lögmæti, um meðalhóf, um vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt ákvæðum laga nr. 75/2019, um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Það verður áhugavert að sjá hvernig samspil þessara aðila verður en þessi réttur er tryggður samkvæmt lögum.
Eftirlit lögreglu sem fer fram að frumkvæði lögreglustjóra vegna afbrotavarna, skipulagðrar glæpastarfsemi eða í þágu öryggis ríkisins og almennings verður endurmetið að fjórum vikum liðnum sem fær síðan staðfestingu eftir fjóra mánuði hjá dómstólum. Í þessu samhengi er mikilvægt og jákvætt að við fyrirhugum að leggja hreinlega mat á reynsluna af lögunum innan þriggja ára að þessu leyti. Þessu fagna ég, og að treysta megi því að við munum gefa því mikinn gaum hvernig þetta mun útfærast í reynd og hversu skilvirkt eftirlit verður í reynd hægt að hafa af hálfu ríkissaksóknara á þessum aðgerðum af hálfu lögreglu.
Forseti. Ég gæti varið tímanum í að tala um utanaðkomandi ógnir sem að okkar samfélagi og borgurunum stafa af hálfu skipulagðra glæpasamtaka sem hafa svo sannarlega viðkomu hér á landi líkt og annars staðar í þessum heimi. Við vitum líka að einstakir aðilar eru færir um að vinna samfélaginu mikinn skaða. Við vitum það og það var einsýnt af gestum sem komu fyrir nefndina sem opnuðu augu mín persónulega verulega fyrir þeim raunveruleika sem lögreglan býr við, að hingað til lands komi einstaklingar og þeim fylgi ábendingar frá utanaðkomandi yfirvöldum um að æskilegt sé að hafa einhvers konar athugun á hegðun þeirra hér á landi og það liggi fyrir einhvers konar grunnur þó að hann falli ekki undir ákvæði hegningarlaga. Hefur lögreglunni oft reynst erfitt að móttaka slíkar upplýsingar frá aðilum á borð við Europol og Eurojust vegna þess að slíkum upplýsingamiðlunum eru sett skilyrði þegar unnið er samkvæmt lagaákvæðum sem eru sambærileg þeim sem við samþykkjum hér í dag. Mér finnst vert að hlusta á þetta. Mér finnst vert að taka á því mark. Við vekjum athygli á því að þessar upplýsingar koma ekki bara frá alþjóðlegum stofnunum heldur líka frá aðilum sem eru svokallaðir uppljóstrarar, þar sem er mikilvægt að við séum ekki að afhjúpa persónuupplýsingar eða auðkenni þessara aðila.
Þetta eru flókin mál og ég er svo sannarlega meðvituð um það. Ég vil bara að það sé alveg ljóst að mikilvægi verkefna þessara er í fullkomnu samhengi við það að hér erum við að stíga stór skref í átt að friðhelgi einkalífs. Mér finnst engin ástæða til að draga fjöður yfir það. Ég er hins vegar hlynnt þessum lagabreytingum. Ég vil hins vegar leggja áherslu á að það þarf fjármögnun til þess að þau virki sem skyldi. Ef það á að vera raunveruleg áhersla á þennan málaflokk af hálfu ríkisstjórnarinnar þá þarf fjármagn að fylgja í samræmi við það. Að því sögðu hef ég lokið máli mínu og ég finn til mikillar ábyrgðar.