lögreglulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína og fyrir að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum. Í ljósi þess að hv. þingmaður kvittar undir þetta álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar og án fyrirvara, sem ég túlka sem ríkan stuðning við þetta mál og við umfjöllun þess, og í ljósi þess að á hinum Norðurlöndunum, sem við viljum oft bera okkur saman við og erum alltaf að reyna að færa okkur í átt að, er byggt á dómsúrskurði þegar verið er að veita svona heimildir en hér er verið að leggja til að svo verði ekki heldur er verið að sniðganga það ferli að fá úrskurð dómara um hvort hafa megi eftirlit með einstaklingi — bara til að segja það aftur — sem hefur ekki brotið neitt af sér og ekkert er vitað til um að það standi til, þá langar mig að spyrja hvers vegna hv. þingmaður telur að það væri einhvern veginn til trafala að fá úrskurð dómara um þetta eftirlit? Af hverju ekki? Við fjölluðum um þetta í nefndinni og mér fannst aldrei koma fram sannfærandi rökstuðningur fyrir því af hverju væri ekki hægt að fara þá leið að fá hreinlega úrskurð dómara áður en farið er í þetta eftirlit. Mig langar bara til að spyrja hv. þingmann hvers vegna ekki væri hægt að fara þá leið að hennar mati. Og í ljósi þess að við Píratar erum með breytingartillögu þess efnis að það verði fenginn úrskurður dómara, hvort hún myndi þá styðja við þá tillögu eða ekki.