154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[17:22]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Ég verð samt að byrja á því að segja að hvað varðar þær tillögur sem settar eru fram af hálfu 1. minni hluta í tengslum við fyrirliggjandi mál þá hef ég bara hreinlega ekki náð að kynna mér það nægilega vel þar sem þær lágu mjög nýlega fyrir. (Gripið fram í.) Það eru líka breytingartillögur sem ég ætla að fá að kynna mér og ég vona að hv. þingmaður játi mér svigrúm til að leggjast yfir. Hvað varðar hins vegar vísun til norræns réttar varðandi áskilnað um dómsúrskurð, sem er þá hin almenna meginregla, vil ég gjarnan ítreka það sem ég sagði rétt áðan um að það er allur gangur á því hvort yfirvöldum sé unnt að nýta sér þessar upplýsingar frá alþjóðastofnunum á borð við Interpol og Eurojust þegar áskilnaður er um dómsúrskurð. Þetta er samkvæmt minni athugun. Ég hef ekki forsendur til að leggja mat á það hvort það sé einhlítt að öllu leyti í norrænum rétti hvort dómsúrskurður sé áskilinn.

Ég hjó sérstaklega eftir því að hv. þingmaður nefndi í þessu sambandi að í norskum rétti væri meginregla að dómsúrskurðar væri þörf þegar um er að ræða þvingunaraðgerðir — og ég vitna þarna beint, vonandi hef ég rétt eftir hv. þingmanni. Hér er um að ræða þvingunaraðgerðir á borð við rafrænt eftirlit. Fyrir það fyrsta er rafrænt eftirlit ekki þvingunaraðgerð í skilningi laga um meðferð sakamála og ég veit ekki hreinlega hvort hér sé verið að vísa í aðra málaflokka sem lúta að beitingu rafrænnar vöktunar í löggæslatilgangi. Það náttúrlega flúttar ekki alveg við íslenskan rétt. Ég veit ekki alveg hvort ég sé að skilja þetta — hv. þingmaður má þá gjarnan leiðrétta mig. (Forseti hringir.) Ég ætla bara að koma að seinni hluta ef ég næ í seinna andsvari.