154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[17:28]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að eyða miklum tíma þingsins í að segja frá því hversu mikilvægt mér finnst þetta frumvarp sem við erum að ræða hér í 2. umræðu. Ég er stolt af því að hafa fengið að taka þátt í meðferð þess hjá allsherjar- og menntamálanefnd og þakka nefndinni kærlega fyrir samstarfið. Ég fagna því mjög að við séum að taka þetta mál til 2. umræðu hér í dag. Heimildir lögreglu til aðgerða í þágu þess grundvallast á ákvæðum lögreglulaga, enn frekar en sakamálalaga, þ.e. í þeim tilvikum þegar ekki er fyrir hendi grunur um afbrot eða tilraun til afbrots. Löggæsla nú á tímum snýr ekki síður að frumkvæðisvinnu í formi upplýsingaöflunar og greiningar upplýsinga. Breytt afbrotamynstur, aukin hætta á hryðjuverkum og útbreiðsla alþjóðlegrar skipulagðrar brotastarfsemi krefst þess að löggæsluyfirvöld geti brugðist við og gripið til aðgerða áður en einstök brot eru framin. Með frumvarpi þessu er því lögð aukin áhersla á mikilvægi þess að lögregla geti gripið fyrr inn í atburðarás og þannig fyrirbyggt að framin séu alvarleg afbrot.

Í lögreglulögunum er að finna ákvæði um að lögreglu sé skylt að halda uppi lögum og reglu í landinu og tryggja öryggi borgaranna en ekki er mörg ákvæði að finna um heimildir lögreglu til upplýsingaöflunar í þágu afbrotavarna. Þó mætti leiða af ákveðnum ákvæðum laganna að það felist í hlutarins eðli að slíkar heimildir séu til staðar en það er ekki nægilega skýrt í núgildandi lögum. Þess vegna stöndum við hér í dag.

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mál sem skiptir sköpum fyrir þjóðaröryggi, aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi og að tryggja öryggi borgaranna almennt. Þessar heimildir sem við erum að veita lögreglu með þessu máli eru mikilvægar og við eigum að treysta lögreglunni. Hún er traustsins verð. Það er ekkert í störfum lögreglu sem er gert af geðþótta. Við eigum að veita henni þær heimildir og þau verkfæri að hún geti sinnt störfum sínum til hlítar. Og ég ítreka: Lögreglan er traustsins verð og gott betur en það. Þar fer fram virkilega faglegt starf svo að eftir því er tekið. Við erum að tryggja lögreglu nauðsynlegar heimildir til að framfylgja bæði störfum sínum hér á landi í almannaþágu en einnig að tryggja traust samstarf við erlend yfirvöld sem standa einnig í ströngu við að koma í veg fyrir að skipulögð brotastarfsemi nái enn frekari fótfestu í okkar alþjóðasamfélagi.

Það er nefnilega þannig að við erum alltaf að þrengja að lögreglunni. Upphaflegt frumvarp sem var flutt af hæstv. dómsmálaráðherra hugnaðist mér mjög vel enda ber ég traust til lögreglu hér á landi. Það er engin ástæða til annars. Á meðan ég ítreka þakkir mínar til allsherjar- og menntamálanefndar fyrir samstarfið um þetta mál þá erum við samt sem áður að þrengja að lögreglunni, við erum að þrengja þessar heimildir. Ókei, við fáum að endurskoða það eftir þrjú ár og ég fagna því. Ég styð það heils hugar að við séum að samþykkja þær breytingar sem meiri hlutinn leggur hér til. Vissulega verð ég að vera heiðarleg með það, og standa með minni eigin sannfæringu, að ég hefði viljað sjá frumvarpið fara í gegn óbreytt en ég styð það að við fáum þó eftir þrjú ár að endurskoða þessi ákvæði sem við erum að fara að samþykkja hér vonandi í kvöld eða nótt. Við fáum þá tækifæri til þess að skoða hver reynslan er og hvort það sé nauðsynlegt að gera einhverjar breytingar eftir því hvað reynslan hefur sýnt okkur.

En gott fólk, gerum þetta bara almennilega. Ég get ekki ítrekað það nægilega oft að við eigum að búa lögreglu þannig starfsaðstæður að hún sé örugg í störfum sínum. Þannig getur lögreglan tryggt okkar öryggi enn frekar.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu meira um hversu mikilvægt mér finnst að lögreglan búi við viðunandi starfsaðstæður. Við erum svo sannarlega að taka af í allri fjármálaáætlun aðhaldskröfu á lögregluna. Ég fagna því. Það er virkilega jákvæð framþróun að við séum ekki að þrengja enn frekar þar að. Ég fagna þessari breytingu. Við erum hér að axla ábyrgð og tryggja viðunandi öryggi landsmanna. Breytingin er nauðsynleg að mínu mati og við hefðum átt að standa fyrir löngu síðan hér í þessum þingsal, hársbreidd frá því að samþykkja þær mikilvægu og brýnu breytingar á lögreglulögunum sem við erum nú að fara að gera. Það er mikilvægt að við stöndum með lögreglunni í þeirri baráttu sem hún stendur í ströngu við varðandi skipulagða brotastarfsemi. Okkur er það ljúft og hreinlega skylt að gera það.

Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hugrekkið að koma með þetta hérna inn í sal og fyrir samstarfið um bæði breytingar á málinu og að þoka þessu svona vel áfram. — Takk fyrir mig.