lögreglulög.
Forseti. Í frumvarpi þessu sem lýtur að breytingum á lögreglulögum hafa Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð komið sér saman um að veita skuli lögreglu heimildir til eftirlits með almennum borgurum án þess að fyrir liggi grunur um að viðkomandi hafi brotið af sér eða hafi það í hyggju. Þetta er ekki alveg nýtt mál. Slíkar heimildir hafa komið til umræðu áður, stundum kallaðar forvirkar rannsóknarheimildir, sem þær eru, en svo var fundið upp aðeins fegurra orð yfir það, orðið afbrotavarnir.
Við Píratar getum ekki stutt málið eins og það er lagt fram hér í dag. Lögregla hefur nú þegar víðtækar og ansi íþyngjandi heimildir til inngripa í friðhelgi einkalífs fólks þegar grunur liggur fyrir um að einstaklingur hafi brotið af sér eða hafi það í hyggju. Að yfirfæra slíkar heimildir í ríkari mæli yfir á einstaklinga sem hvorki eru grunaðir um að hafa brotið af sér né hafa það í hyggju felur í sér of íþyngjandi inngrip í réttindi almennra borgara sem færa þarf mjög sterk rök fyrir og veita þarf virkt og sjálfstætt eftirlit. Eftirlit með einstaklingum sem ekki hafa brotið af sér lögum samkvæmt getur í einhverjum tilvikum verið nauðsynlegt en framkvæmd slíkra aðgerða verður að vera algjörlega yfir allan vafa hafin. Besta leiðin til að tryggja friðhelgi einkalífs einstaklinga í þessum tilvikum er öflugt, virkt og sjálfstætt eftirlit með meðferð slíkra heimilda. Því er hins vegar ekki fyrir að fara í frumvarpinu og er það meginástæða þess að við getum ekki stutt það.
Hlutverk lögreglunnar í lýðræðissamfélagi má segja að sé friðargæsla ekki síst; að tryggja líkamlegt öryggi borgaranna, halda uppi lögum og reglu í samræmi við lýðræðislegan vilja og hagsmuni fólksins í landinu og skapa traust í samfélaginu. Til að sinna sínu hlutverki þarf lögreglan að hafa tiltekin tæki og hefur þau. Lögreglan þarf og hefur eftirlitsheimildir, hún hefur heimildir til upplýsingaöflunar, rannsóknarheimildir og valdbeitingarheimildir. En þau tæki sem lögreglan þarf til að sinna sínu hlutverki eru ekki síður mannauður og traust. Varðandi mannauðinn þá hefur Landssamband lögreglumanna mótmælt harðlega fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð til löggæslumála sem boðaður er í fjármálaáætlun. Í sömu ályktun harmar félagið þá stöðu sem uppi er í húsnæðismálum lögreglunnar á Íslandi. Ég ætla aðeins að lesa upp úr ályktuninni, með leyfi forseta:
„Löggæsla er ein af grunnstoðum samfélagsins. Það er staðreynd að hlutfallslega hefur lögreglumönnum fækkað mikið undanfarna áratugi í samanburði við fjölgun íbúa og ferðamanna á Íslandi. Verkefni lögreglunnar hafa á þessum tíma orðið bæði flóknari og mannaflsfrekari en stjórnvöld telja ekki ástæðu til þess að bæta í heldur skera niður.“
Aftur að nauðsyn þess að lögreglan hafi þau tæki sem hún þarf til að sinna sínu hlutverki. Traust er eitt af þessum tækjum. Hvernig eflum við traust til lögreglu? Við eflum traust til lögreglu með því að tryggja mannafla hennar til að sinna skyldum sínum. Það er mannaflafrekt að tryggja öryggi og þá á ég bæði við öryggi almennings, sem lögreglunni er ætlað að tryggja, og öryggi lögreglumanna sjálfra. Við byggjum upp traust með góðri þjálfun og metnaðarfullum inntökuskilyrðum í lögregluna. Við byggjum upp traust með skýrum og gagnsæjum heimildum lögreglunnar sem fólk skilur, bæði skilur hvernig þær virka og til hvers þær eru, heimildir sem fólk skilur bæði með heilanum og hjartanu, eins og ég segi stundum við börnin mín. Með aðhaldi og ábyrgum viðbrögðum þegar eitthvað bregður út af eflum við traust. Það að lögreglan stígi of fljótt fram og fullyrði að ekkert sé athugavert við vinnubrögð hennar þegar hávær gagnrýni hefur komið fram eykur ekki traust. Traust til lögreglu er lykilatriði og traust krefst gagnkvæmrar virðingar en fæst ekki með ógnarstjórn.
Laun sem endurspegla ríka ábyrgð lögreglumanna og undirstrika mikilvægi þess að störf þeirra séu unnin af stakri fagmennsku eru þáttur í þeirri virðingu. Það er okkar og það er ríkisins að sýna lögreglumönnum virðingu með þeim hætti. Þannig tekst þeim best að standa undir þeirri ábyrgð sem þeim er falin. Til þess að geta staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru til lögreglunnar þarf lögreglan enn fremur að búa við starfsaðstæður sem styðja hana í að sinna verkum sínum af kostgæfni og fagmennsku en hindra hana ekki í því. Skortur á lögreglumönnum er ekkert leyndarmál og lögreglan hefur verið mjög opinská hvað það varðar. Fjöldi lögreglumanna hefur ekki breyst á götunni frá sameiningunni árið 2015 þrátt fyrir að ítrekað hafi verið kallað eftir því. Það að færa menntun lögreglunnar upp á háskólastig hefur að mati sumra sem til þekkja haft þau áhrif að hálfmenntuðum lögreglumönnum hefur fjölgað og farið hefur verið á mis við dýrmæta reynslu. Vegna hraða samfélagsins og fækkunar lögreglumanna hefur reynst erfitt að sinna þjálfun eins og áður var og eins og æskilegt væri. Flestir lögreglumenn eru með litla reynslu af störfum á götunni og hef ég það eftir þeim sem betur þekkja til en ég að algengt sé að reynslan sé núll til fimm ár. Að þjálfa upp lögreglumenn tekur mörg ár og það kostar pening en það er þess virði. Fyrst þurfum við að tryggja lögreglunni starfsaðstæður og fjármagn til að takast á við hlutverk sitt eins og það er skilgreint í dag, þá þurfum við að tryggja fjármuni og lagalega umgjörð fyrir öflugt ytra eftirlit í rauntíma, svo er hægt að fara að ræða fyrir alvöru auknar heimildir til eftirlits með fólki sem hefur ekkert brotið af sér.
Forseti. Lögreglumenn eru bara fólk eins og við hér. Þau eiga fjölskyldur, þau lifa sínu lífi utan vinnunnar, hafa sjálfstæðar skoðanir og sjálfstæðan vilja. Þau eru mannleg, með bæði öllum þeim dásamlegu kostum sem því fylgja og göllum. Krafan um skýran ramma og eftirlit með störfum lögreglu er ekki merki um vantraust. Það er eðlileg krafa til umgjarðar starfa þeirra einu í okkar samfélagi sem hafa lögbundna heimild til að beita ofbeldi. Ramminn þarf að vera skýr. Þó að auðvitað skipti máli að velja vel inn í ábyrgðarstörf af þessu tagi og þótt við getum vafalaust sammælst um að þar takist vel til í langflestum tilvikum þá eigum við að búa þannig um valdheimildir að það skipti í rauninni ekki máli hver fer með hlutverkið. Ramminn þarf að vera skýr og varnaglinn til að koma í veg fyrir misbeitingu og úrræði til að lágmarka skaða af slíkri misbeitingu og bæta fyrir það, þetta þarf alltaf að vera fyrir hendi. Við eigum ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því hver sinnir starfinu. Við eigum að geta treyst því. Einungis eitt tilfelli af sýnilegri misbeitingu getur valdið stórskaða á virðingu og trausti til lögreglunnar í heild. En það er ekki nóg að yfirvöld telji sér trú um að meint beiting valds sé réttlætanleg heldur þarf að sjást skýrt út á við að hún sé annaðhvort réttlætanleg eða að möguleg misbeiting sé meðhöndluð af alvöru. Og það þarf að vera sýnilegt þeim sem bera minnst traust til lögreglunnar.
Varðandi eftirlit með lögreglu, sem við höfum kallað eftir, þá er staðan þannig í dag að það eftirlit er af mjög skornum skammti, þótt reyndar hafi það farið batnandi á undanförnum árum og eiginlega erfitt að ímynda sér hvernig það var áður. Tiltölulega nýlega var komið á fót nefnd um eftirlit með störfum lögreglu en nefndin hefur sjálf lýst sér sem póstflokkunarstöð. Nefndin hefur hvorki mannafla, fjármagn né heimildir til þess að hafa raunverulegt eftirlit með störfum lögreglu. Samkvæmt lögum er nefndinni heimilt að hafa svokallað frumkvæðiseftirlit með störfum lögreglu þegar upp koma vísbendingar um kerfisbundinn vanda en nefndin hefur talað um að hún hafi ekki þau tæki sem hún þarf og þá burði sem þyrfti til að hafa fullnægjandi eftirlit með því.
Til stóð að gera nokkrar umbætur á nefndinni í því frumvarpi sem við erum að ræða hér, þ.e. í 8. og 9. gr. frumvarpsins — og voru þær umbætur mjög til bóta — með því að fjölga í nefndinni, með því að gera nefndinni að skila skýrslu til Alþingis og auka starfsemi hennar og heimildir. Þetta hefði verið mjög til bóta en því miður hefur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagt fram breytingartillögu um að fella þau ákvæði brott án þess að nokkur rökstuðningur hafi komið fram fyrir því, annar en sá að vegna þess að þau ætli að gera einhverjar breytingar á þeim heimildum sem er verið að setja á hér þá sé það óþarft. En ég held að það sé ekki raunin.
Ríkissaksóknari hefur eftirlit með beitingu þvingunaraðgerða á borð við hleranir og þess háttar. Það er líka tiltölulega nýtilkomið. Niðurstöður þeirra úttekta sem farið hafa fram af hálfu ríkissaksóknara gefa því miður ekki tilefni til að ætla að allt sé í besta lagi hvað það varðar. Embættið hefur gert athugasemdir við að fá ekki þau gögn og þær upplýsingar sem það þarf til að athuga málin. Hvorki ríkissaksóknari né nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur neinar heimildir til að knýja fram breytingar hjá lögreglunni nema með orðum.
Varðandi nefnd um eftirlit með störfum lögreglu þá er rétt að nefna að þegar kemur að því að veita fjármuni til eftirlits með verklagi og verklagsreglum lögreglu þá hefur lögreglan ekki fjallað um eitt einasta frumkvæðismál í langan tíma, sem er skýr ábending þess að nefndin hafi ekki úr nægum fjármunum og starfsfólki að moða nú þegar. Hið sama er uppi á teningnum hvað varðar innra gæðaeftirlit lögreglu sem lagt hefur verið til að verði komið á fót; ekkert er vitað um hvaðan fjármunir eiga að koma eða fjölda þeirra sem munu starfa við slíkt eftirlit.
Forseti. Eftirlit með lögreglu er lögreglunni sjálfri í hag. Hafa lögreglumenn raunar margir hverjir sjálfir kallað eftir virkara ytra eftirliti þar sem lögreglan er eðlilega iðulega undir smásjá í störfum sínum. Það snýst ekki um að finna sökudólga, alls ekki. Það snýst um að tryggja að allt gangi vel. Það snýst um að veita lögreglumönnum nauðsynlegar leiðbeiningar og aðhald í starfi. En það sem kannski er mikilvægast við eftirlitið og varnaglana sem þurfa að vera í kerfinu er traust almennings í garð lögreglu. Ef eftirlitið virkar vel, sérstaklega ef það er snemma í ferlinu og viðbrögð við annmörkum eru skjót og skýr, þá eykst traust almennings til lögreglu sem eykur öryggi í samfélaginu og auðveldar störf lögreglu. Störf lögreglu eru mun auðveldari ef hún nýtur trausts í samfélaginu. Við eigum að vinna að því. Það er öllum í hag. Því miður sýna kannanir að traust til lögreglu hefur farið hríðminnkandi á síðustu árum, enda er það í takti við það að lögreglumönnum á hvern íbúa fer fækkandi þrátt fyrir aukna þörf fyrir mannafla. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru að auka valdheimildir lögreglu án þess að bæta við leiðbeiningum, þjálfun, menntun og mannafla til þess að geta sinnt auknum eftirlits- og valdheimildum með góðum hætti.
Frá árinu 2017 hefur ríkissaksóknari haft eftirlit með því að gögnum sem aflað er við löggæslustörf sé eytt og tilkynnt sé um þvingunaraðgerðir samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Þá setur embættið reglur um hvernig eftirlitinu skuli háttað þar sem m.a. skal koma fram hvernig unnt er að upplýsa um hver eða hverjir hafi aðgang að upplýsingum sem aflað hefur verið með aðgerðunum. Um eftirlitið segir í skýrslu ríkissaksóknara frá árinu 2021 að ríkissaksóknari hafi komist að þeirri niðurstöðu að verulega skorti á að lögreglustjórar og héraðssaksóknari fylgi lögum og fyrirmælum ríkissaksóknara um tilkynningar til sakborninga, eyðingu hlustunargagna og að halda skrá um þá sem hafa haft aðgang að upplýsingum sem aflað hefur verið með aðgerð. Um það sem kallað er tómlæti innan yfirstjórnar lögreglu segir í skýrslunni, með leyfi forseta:
„Ríkissaksóknari ætlast að sjálfsögðu til þess að lögreglustjórar og héraðssaksóknari fari eftir hans leiðbeiningum og fyrirmælum almennt og í hverju máli fyrir sig líkt og lög um meðferð sakamála gera ráð fyrir.“
Við lestur skýrslunnar virðist því miður að erfitt sé að fylgja því eftirliti eftir sem þó er gerð krafa um. Í skýrslunni er talað um sinnuleysi, eins og áður er rakið, en ekki bara það, heldur tæknilega annmarka, úreltan búnað og erfiðleika við uppfærslu svo að hægt sé að sinna eftirlitinu. Niðurstaðan er sú að ríkissaksóknari hefur ítrekað bent á að hann geti illa sinnt eftirlitsskyldum sínum. Það ætti því að vera augljóst að almenningur getur illa haft yfirsýn og lýðræðislegt eftirlit með þessum málum.
Forseti. Það sem hefur truflað mig við meðferð þessa máls sem við erum hér að vinna er í fyrsta lagi þessi tregða til að efla eftirlit með störfum lögreglu þar sem það er okkur öllum í hag. Líkt og kom fram hérna áðan snýst þetta ekki um að finna sökudólga, það snýst ekki um að skapa tortryggni, heldur þvert á móti að skapa traust, skýran ramma, traust almennings til þess að lögum og reglum sé fylgt, valdbeitingarheimildum og eftirlitsheimildum sé ekki beitt þegar ekki er ástæða til og að almennir borgarar þurfi ekkert að hafa áhyggjur af því að það sé verið að fylgjast með þeim að ósekju. Eftirlit með lögreglu snýst líka um það, eins og ég sagði, að veita lögreglunni sjálfri leiðbeiningar og aðhald í sínum störfum. Þetta snýst alls ekki um neitt annað.
Annað sem hefur truflað mig við meðferð þessa máls er ákveðinn ruglingur og upplýsingaóreiða sem kemur upp þegar óskað er eftir upplýsingum og gögnum sem eru okkur nauðsynleg til að geta tekið afstöðu. Ákveðnar misvísandi upplýsingar hafa komið fram, bæði um markmið breytinga sem eru gerðar og áhrif þeirra. Það er nefnilega svo að gera þarf skýran greinarmun á tegundum afbrota, tegundum þvingunarheimilda, tegundum eftirlits, alvarleika afbrota og öðru. Í lögunum eru almennar upplýsingaöflunarheimildir, gagnaöflunarheimildir lögreglu sem jafnvel má deila um hvort sé þörf á að hafa í lögum. Það eru almennar eftirlitsheimildir með fólki á almannafæri, einstaklingum sem hafa ekkert af sér gert og eru ekki grunaðir um það. Þetta eru víðtækar heimildir. Og í þessum lögum er talað um afbrotavarnir. Ég vek athygli á því að hugtakið afbrotavarnir er hvergi skilgreint í lögum og getur þýtt ýmislegt. Að koma í veg fyrir afbrot, það er ansi víðtækt.
Það sem hefur truflað mig og vekur áhyggjur mínar af vinnslu frumvarpsins, bæði áður en það kemur til þingsins og á meðan við erum að vinna það hér í þinginu, er að þegar spurt er um t.d. sambærilegar heimildir í öðrum löndum þá er það borið saman við allt aðrar heimildir sem lúta að allt öðrum tegundum brota. Það hefur ekki farið fram alveg skýr og sanngjarn samanburður við það sem tíðkast í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við. Þetta er ákveðin upplýsingaóreiða við vinnslu þessa máls sem mér hefur þótt gríðarlega miður. Við erum öll sammála um að það þurfi að tryggja að lögreglan hafi þau tæki sem hún þarf. Það er enginn sem vill koma í veg fyrir það. Við þurfum bara að gera það eins og lýðræðisríki en ekki einræðisríki með ógnarstjórn. Til dæmis eru til rökstuðnings heimilda sem nýta á til þess að koma í veg fyrir hvers konar afbrot notuð dæmi þar sem er verið að tala um hryðjuverk og brot gegn allsherjarreglu og öryggi ríkisins. Þetta er auðvitað ekki sambærilegt. Það er ekki sama hvort við erum að tala um það sem kalla má skipulagða brotastarfsemi, sem gætu verið fimm unglingsstrákar í einhverju hverfi sem fara reglulega og stela hjólum — það er skipulögð brotastarfsemi — eða hryðjuverkaógn og öryggi ríkisins og annað. Afbrotavarnir, til að koma í veg fyrir öll afbrot; þetta hefur mér þótt óskýrt og ruglingslegt.
Sömuleiðis hefur ekki verið alveg skýrt hvort þær heimildir sem óskað er eftir að almenn lögregla hafi hér séu í höndum almennrar lögreglu eða sérstakrar lögreglu í öðrum löndum, hvernig eftirlitinu er háttað, í hvaða tilvikum farið er fram á dómsúrskurð og annað. Þetta hefur mér þótt mjög óþægilegt við meðferð þessa máls. Nú sit ég ekki í allsherjar- og menntamálanefnd en ég sat í henni áður þar sem var verið að fjalla um þetta mál og þetta var mikið vandamál þá.
Þá hefur ekkert komið fram sem tryggir fjárheimildir vegna þessa frumvarps, hvorki í frumvarpinu sjálfu né við gerð fjárlaga eða fjármálaáætlunar. Reyndar er sérstaklega tekið fram í greinargerð frumvarpsins að mögulega muni þurfa að tryggja fjármuni með tilfærslu innan fjárheimilda málaflokksins sem þýðir á mannamáli enn frekari fjárskort í almennri löggæslu og við rannsóknir sakamála. Það er verið að leggja meira á lögregluna án þess að bæta úr því sem brýnt er að bæta, sem er skortur á mannafla, skortur á menntun og þjálfun, skortur á mannafla til að geta sinnt menntun og þjálfun og annað slíkt.
Mig langar til að víkja aðeins að lokum að breytingartillögum meiri hlutans sem ég tel því miður að bæti þetta mál ekki að því leyti sem þörf krefur. Þar er annars vegar talað um að ákvörðun skuli skráð í kerfi lögreglu og tilkynnt til ríkissaksóknara eins fljótt og kostur er. Ef það er mikið að gera, hvenær ætli sú tilkynning fari þá fram? Það sem mér hefur þótt skrýtið við þetta frumvarp frá upphafi er að ákvörðun um að hafa eftirlit með einstaklingi sé tekin af lögreglustjóra og borin undir stýrihóp um skipulagða brotastarfsemi, sem samanstendur af fulltrúum löggjafarvaldsins og ákæruvaldsins. Það hvernig stýrihópur sem skipaður er lögreglunni og ákæruvaldinu á að skera úr um það hvort eftirlitið sé í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru, og dómari skoðar almennt í öðrum málum, þykir mér óljóst, enda held ég að það sé ekki tilgangurinn. Ég held að það lúti frekar að samhæfingarhlutverki og kannski þörfum lögreglunnar og öðru slíku. Það er engin aðkoma utanaðkomandi aðila að þessari ákvörðun fyrr en mögulega að fjórum mánuðum liðnum.
Það er margt óljóst í þessum breytingartillögum. Hér er talað um að kæra megi úrskurð dómara til Landsréttar ef hann getur sætt kæru eftir almennum reglum 1. mgr. 192. gr. laga um meðferð sakamála, sem í fljótu bragði ég fæ ekki betur séð en að snúist bara um það ef um sakamál verður að ræða. Þá vaknar spurningin: Er ekki hægt að kæra úrskurð dómara áfram ef ekki er um sakamál að ræða? Þetta er óljóst, þetta er óskýrt. Ég hef áhyggjur af því að þetta sé ekki fyllilega úthugsað.
Í breytingartillögunum kemur fram að þegar eftirliti með einstaklingi er lokið skuli lögregla tilkynna þeim sem eftirlitið beindist að um það án tafar nema ríkir hagsmunir standi því í vegi er varða afbrotavarnir, — sem er hvergi skilgreint — rannsókn sakamála, öryggi ríkisins eða samskipti við erlend ríki. Þetta eru þar af leiðandi allt of opnar undantekningar á því að tilkynnt sé til einstaklings að hann hafi sætt eftirliti.
Það sem er verst við breytingartillögur meiri hlutans er að fallið skuli frá umbótum á nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hérna áðan, þegar takmarkanir á eftirliti voru gagnrýndar, að einstaklingur geti leitað til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu þrátt fyrir að búið sé að fella burt ákvæði sem efla nefndina. Hann getur það náttúrlega ekki ef hann veit ekki af eftirlitinu. Og það eru gríðarlega miklar heimildir til að gera undantekningu á því að láta einstaklinginn vita af eftirlitinu, fyrir utan það að hann fær ekki að vita af því fyrr en eftirlitinu er lokið.
Við getum því ekki fallist á þetta mál. Það er öllum í hag að lögreglan hafi þau tæki sem hún þarf til að sinna störfum sínum og það er skilningur á því. Við Píratar höfum skilning á því að lögreglan geti þurft að hafa heimildir til þess að grípa inn í friðhelgi einstaklingsins, friðhelgi einkalífs fólks. Það er skilningur á því. En við búum í lýðræðisríki, við búum í réttarríki og það þýðir einfaldlega að allar slíkar heimildir, öll slík inngrip þurfa að uppfylla tiltekin skilyrði. Og það alvarlegasta við þetta mál er kannski það að ekki hafi farið fram nægilega skýr og greinargóð, óháð úttekt á þeim heimildum sem þarna eru lagðar til og því hvernig þær samræmast þeim mannréttindaskuldbindingum sem við erum skuldbundin af og eru staðfest í stjórnarskrá. Það er auðvitað viðvarandi vandamál hér á þingi að það er ekkert ferli sem tryggir slíka óháða skoðun. Minni ég þar á frumvarp okkar Pírata þess efnis að sett verði á fót sjálfstæð nefnd sem kannar það. Ég hefði nú haldið það væru allir á því máli að við ættum ekki að samþykkja lög frá Alþingi sem standast ekki stjórnarskrá og ég vona að það mál nái eyrum hv. þingmanna og komist hér í gegn fyrr en síðar þó að það hafi ekki tekist að þessu sinni.
Forseti. Við erum hér að tala um afbrotavarnir og hlutverk lögreglunnar. Hlutverk hennar er að halda uppi öryggi í samfélaginu og halda uppi lögum og reglum. Afbrotavarnir snúast ekki um að fylgjast með borgurunum og passa með öllum hætti og ráðast inn í þeirra einkalíf til þess að tryggja að þeir brjóti aldrei af sér. Hinar raunverulegu afbrotavarnir snúast um aukinn skilning og samkennd í samfélaginu, að tryggja afkomu fólks og öryggi, tryggja að frumþörfum manneskjunnar sé mætt, þörfinni fyrir líkamlegt öryggi, þak yfir höfuðið, mat í maga, virðingu, skilning og þörfinni fyrir að eiga sér stað í samfélaginu, þörfinni að tilheyra. Hlutverk lögreglu er að framfylgja lögum, skapa og treysta frið og öryggi í samfélaginu.
Í lýðræðissamfélagi ættu öll að geta treyst lögreglunni til að vernda sig og þjóna en því miður er raunveruleikinn oft annar fyrir jaðarsetta hópa og viðkvæma hópa. Í gegnum tíðina hafa jaðarsettir einstaklingar upplifað fordóma og ómálefnaleg afskipti af hálfu lögreglu. Þetta getur verið upplifun þeirra á grundvelli kynþáttar, kynhneigðar, kyns, efnahagslegrar stöðu eða annarra þátta sem setja þá út fyrir hið samfélagslega norm. Þessi reynsla getur skapað djúpt vantraust og tortryggni gagnvart þeim sem ættu að vera vörsluaðilar réttlætis og öryggis. Þegar fólk upplifir kerfisbundna mismunun eða órétti af hálfu lögreglu getur það ekki lagt blint traust á hana. Traust er byggt á gagnkvæmri virðingu og réttlátri meðferð en fyrir marga jaðarsetta einstaklinga er virðingin ekki til staðar. Þessir hópar þurfa að sjá raunverulegar og markvissar aðgerðir til að breyta þessum veruleika. Það felur í sér aukna þjálfun lögreglu, átak gegn kerfisbundnum fordómum, aukinn skilning á menningarlegum margbreytileika og aukið gagnsæi í starfsháttum. Það er mikilvægt að tryggja að öll afskipti lögreglu séu fagleg og byggð á réttindum og virðingu fyrir einstaklingnum. Það er líka grundvallaratriði að setja skýra ramma og eftirlit með lögregluvaldi til að tryggja að misbeiting sé lágmörkuð og brot séu tekin alvarlega. Þetta er ekki bara til verndar jaðarhópum heldur til að byggja upp og viðhalda trausti alls samfélagsins á lögreglunni. Ef lögreglan á að þjóna öllum borgurum þurfum við markvisst að vinna að því að tryggja þekkingu og skilning á ólíkum aðstæðum fólks, sér í lagi jaðarsettra hópa, og sýna í verki að allir borgarar geti treyst á lögregluna til að vernda réttindi sín og öryggi.
Forseti. Ef á Íslandi væri til staðar virkt sjálfstætt eftirlit með lögreglu, sem kallað hefur verið eftir um árabil og sem er grundvallaratriði í öllum þeim ríkjum sem við berum okkur saman við, þá værum við að tala um þetta mál, þessar úrlausnir á allt öðrum forsendum þó að það mætti kannski deila um útfærslurnar. En það er ekki á meðan staðan er sú sem hún er. Þegar lögreglan er undirmönnuð, undirfjármögnuð, vegið er að trausti til hennar í samfélaginu, þegar ekkert eftirlit er með lögreglu og ramminn er ekki skýr þá getum við ekki aukið á heimildirnar. Við verðum að byrja á þessu á réttum enda.