154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[18:04]
Horfa

Valgerður Árnadóttir (P):

Forseti. Okkur í Pírötum þykir ekki réttlætanlegt né ástæða til að veita lögreglu auknar heimildir til eftirlits með almennum borgurum. Við setjum varnagla við margt í þessu frumvarpi eins og hv. þingkonur Halldóra Mogensen og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir fóru yfir hér áðan. Eitt af því er að sárlega vantar raunverulega óháða eftirlitsnefnd með störfum lögreglunnar. Sú nefnd sem nú fer með eftirlit með störfum lögreglu er vanfjármögnuð og meiri hluti hér á þingi hefur fellt út auknar fjárheimildir til þeirra. Einnig er þessi þriggja manna eftirlitsnefnd að nafninu til óháð en það hefur ekki komið fram í praxís. Í nefndinni sitja þrjú; eitt tilnefnt af dómsmálaráðherra, eitt af Lögmannafélaginu og eitt af Mannréttindaskrifstofu. Þetta er fámenn nefnd og þó að þarna sitji eitt frá Mannréttindaskrifstofu þá er viðkomandi í minni hluta og klárt að sjá á nýjasta áliti nefndarinnar að mannréttinda er ekki gætt.

Lögreglumenn beittu piparúða á mótmælendur 31. maí síðastliðinn og nefnd um eftirlit með lögreglu komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefðu verið uppi vísbendingar um mögulega refsiverða eða ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu. Myndbönd sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýna að piparúða var beitt á mótmælanda fyrir það eitt að standa kyrr. Það sýnir einnig lögreglumenn draga mótmælendur af götunni og upp á gangstétt og skella þeim í stéttina í lokin. Það er öllum ljóst sem sjá þessi myndbönd að það er óþarfi að spreyja piparúða framan í kyrrstæðan mann. Það hljóta allir að sjá að það er líka alger óþarfi að skella fólki með offorsi í stéttina. En nefndin telur svo ekki vera.

Tvö önnur atvik hafa bæst við á síðustu tíu dögum. Það fyrra þegar lögreglumenn beittu piparúða á mótmælendur hér fyrir utan Alþingi 13. júní sl. og svo á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní, þegar fjöldi lögreglumanna sneri niður og lagðist ofan á mann í miðbæ Reykjavíkur og setti plastpoka yfir höfuð hans fyrir framan fjölda fólks og skelkaðra barna. Ég vænti þess að þessi mál verði tekin fyrir af eftirlitsnefndinni en geri mér því miður ekki vonir um að hún komist að annarri niðurstöðu en hún gerði vegna atviksins sem varð 31. maí.

Mótmælendur sem sýna samstöðu með Palestínumönnum eru ekki ógn við almenna borgara eða stjórnvöld. Þau eru að nýta sinn stjórnarskrárvarða rétt til að mótmæla og hafa þau gert það án ofbeldis og á því ekki að mæta þeim með ofbeldi. Ég var sjálf stödd í miðbæ Reykjavíkur um daginn, rétt áður en samstöðuganga fór fram. Á Laugavegi var fjöldinn allur af lögreglumönnum að fylgjast með að allt færi friðsamlega fram. Á meðan ég og lögreglumennirnir vorum að bíða á Laugaveginum varð ég vitni að því að maður stal dýru hjóli og hjólaði burt á því. Ég tók mynd af þessu og ég gekk upp að næsta lögreglumanni, sýndi honum myndina og benti honum á hvert maðurinn fór. Lögreglumaðurinn hafði engan áhuga á þessum glæp sem gerðist fyrir framan nefið á honum. Hann sagðist upptekinn vegna mótmæla sem enn ekki höfðu farið fram. Hann bað ekki einu sinni um að fá sendar myndirnar af hjólinu og manninum sem því stal. Nei, friðsamir mótmælendur og eftirlit með þeim er mikilvægara en að góma raunverulega glæpamenn. Þetta er öfug forgangsröðun sem er ekki til þess fallin að auka traust okkar til lögreglunnar.

Lögreglan er vanfjármögnuð og samkvæmt lögreglustjóra eru of fáir að störfum og þá myndi man ætla að enn mikilvægara væri að forgangsraða verkefnum betur. Við eigum að geta treyst lögreglunni. Hennar helsta hlutverk er að gæta öryggis okkar og að borgarar fari eftir lögum. Við eigum ekki að þurfa að hræðast lögreglu vegna offors eða ofbeldis sem hefur birst okkur í myndböndum almennra borgara undanfarnar vikur. Við Píratar getum ekki samþykkt auknar heimildir lögreglu til að fylgjast með almennum borgurum sem hafa ekkert sér til sakar unnið á meðan hér er ekki öflugra og óháð eftirlit með störfum lögreglu.