154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[18:09]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að byrja á því að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hlý orð þegar hann fagnaði því að VG væri nú loks að ljúka lögreglulögunum. Ég kýs að taka því sem svo að hv. þingmaður sé ánægður með þær miklu og mikilvægu breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpi sem fyrst kom fram frá hæstv. þáverandi ráðherra, Jóni Gunnarssyni, en við erum hér auðvitað að fjalla um allt annað mál.

Þetta er búin að vera löng og ströng vinna. Við höfum lagt okkur í líma í hv. allsherjar- og menntamálanefnd við að vinna málið með besta mögulega hætti. Við í VG vorum með fyrirvara, ekki vegna þess að við höfum ekki skilning á því að hér hafa tímarnir breyst, aðstæður hafa breyst og við erum að horfast í augu við stöðu sem við aldrei höfum þurft að horfast í augu við áður þegar kemur að öryggi ríkisins og skipulagðri brotastarfsemi. Mig langar að segja að það eru málefni sem varða sérstaklega skipulagða brotastarfsemi sem standa mér mjög nær og ég hef haft miklar áhyggjur af þróun mála undanfarin ár. Mig langar þá sérstaklega að nefna stöðu þolenda mansals, fórnarlömb vændis og fleiri brot þar sem einstaklingar eru þolendur. Og ekki síst vegna þessara mála, þar sem ég og við í VG höfum auðvitað staðið alla tíð með að vilja breyta stöðu þessara einstaklinga, þá skiptir máli að lögreglan hafi ákveðnar heimildir til að geta tekist á við slík brot.

En af hverju erum við þá með fyrirvara? Jú, þetta er auðvitað tvíbent. Það sem skiptir okkur líka meginmáli er að friðhelgi einkalífs fólks sé tryggð. Við höfum talað mikið fyrir því að til þess að fylgjast með einstaklingi sem ekki er grunaður um brot í almannarýminu sé mikilvægt að fá aðkomu dómstóla og að fenginn sé dómsúrskurður. Það er nú komið inn í frumvarpið eins og það lítur út í dag. Þetta skiptir okkur miklu máli — og hér hefur verið fjallað um ýmsa þætti þessa máls í dag í þessari umræðu og ég vil þakka góða umræðu — en það skiptir máli að við virðum líka þrískiptingu ríkisvaldsins, að það sé ekki bara framkvæmdarvaldið sem veiti heimildirnar, hafi eftirlit o.s.frv. Við viljum sjá raunverulegt og öflugt innra eftirlit lögreglu.

Ég tek undir það sem kom m.a. fram í ræðu hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttir Gunnarsdóttur um eflingu nefndar um eftirlit með lögreglu. Ég tek fyllilega undir það, ég vil sjá nefndina eflda en það er bara ekki það sem við erum að vinna með í þessu frumvarpi. Hér erum við að vinna að breytingum á lögreglulögunum sem snúa að afbrotavörnum, vopnaburði og eftirliti með lögreglu og sú mikla vinna sem við höfum lagt í hefur snúist um að tryggja bæði að eftirlitið sé raunverulegt, það sé stöðugt allan tímann og að ekki sé gengið lengra heldur en eðlilegt má teljast.

Ég get líka tekið undir það sem aðrir hv. þingmenn hafa rætt hér í dag, að staða lögreglunnar er auðvitað ekki boðleg eins og hún er. Lögreglan er vanfjármögnuð og það er því mjög mikilvægt að hv. fjárlaganefnd, hvar ég á nú sæti líka, hefur tekið aðhaldskröfuna af lögreglunni, enda hef ég fjallað um það bæði í ræðu og riti að grundvallarvandi lögreglunnar er auðvitað mannekla. Það er mikið álag á lögreglumönnum, lögreglan er í húsnæðisvanda, það er mygluvandi, það er ýmislegt annað að sem ekki verður leyst með auknum heimildum. Þannig að ég tek undir það að við stjórnvöld og við sem samfélag þurfum að styðja betur við okkar löggæslu.

Hér hefur svolítið verið fjallað um að með þessu frumvarpi sé einhvern veginn verið að veita lögreglunni heimildir til að fylgjast með almennum borgurum. Þetta er auðvitað ekki rétt og slíkt frumvarp myndi ég að sjálfsögðu aldrei styðja. Hér er vísað til sérstakra aðstæðna. Við erum að tala um 2. mgr. 175. gr. a hegningarlaga hvar það er skilgreint vel hvað átt er við með skipulögðum brotasamtökum. Hér hefur verið vísað í að einhver sé að stela hjóli eða reykja gras. Það er ekki skipulögð brotastarfsemi.

Með leyfi forseta segir 2. mgr. 175. gr. a hegningarlaga:

„Með skipulögðum brotasamtökum er átt við félagsskap þriggja eða fleiri manna sem hefur það að meginmarkmiði, beint eða óbeint í ávinningsskyni, að fremja með skipulegum hætti refsiverðan verknað sem varðar að minnsta kosti 4 ára fangelsi …“

Þetta skiptir gríðarlegu máli og ég blæs auðvitað á það að hér sé verið að heimila lögreglu að fylgjast með einstaklingum hvar sem er og hvenær sem er. Og ég ítreka að slíkt frumvarp myndi ég aldrei samþykkja. Þetta er þó þannig að lögreglu geta borist áreiðanlegar upplýsingar um einstakling sem tengist skipulagðri brotastarfsemi. Þær upplýsingar geta borist erlendis frá og það er mikilvægt í þeirri stöðu sem við búum í — hvar skipulögð brotastarfsemi hefur hreiðrað um sig í okkar góða samfélagi og fréttir vikulega um mansal, hvort heldur er vinnumansal eða til vændis og ýmis önnur skipulögð brotastarfsemi sem grasserar hér. Við getum ekki litið fram hjá því. Við þurfum að hafa einhver tök á því að takast á við slíka glæpi og ekki síst vegna þeirra þolenda sem undir eru. En til þess að við getum gert það er hér verið að víkka út heimildir lögreglunnar.

Ég ætla að fá að ítreka það hér á mínum lokamínútum að í rúmlega 20 mánuði höfum við unnið að því að það frumvarp sem var lagt hér inn af fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem ég gat ekki fellt mig við, hefur tekið miklum og góðum breytingum. Hér er búið að koma inn dómsúrskurði, hér er búið að koma inn sérstakri endurskoðun og við erum að vinna málið út frá allt öðrum forsendum heldur en voru hér í upphafi. Þess vegna er ég keik og styð þetta mál og það gerum við í VG. Ég ætla að enda á því að þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd og ekki síst formanni nefndarinnar sem hefur lagt sig fram við að mæta ólíkum sjónarmiðum innan nefndarinnar til þess að um þetta mál næðist sátt. Og ég bara ítreka þakkir mínar til allrar nefndarinnar.