154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[18:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Sigríður Elín Sigurðardóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um Nýsköpunarsjóðinn Kríu.

Frumvarpið felur í sér að tveir fjárfestingarsjóðir á málefnasviði nýsköpunarstuðnings, þ.e. að Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Kría, sprota- og nýsköpunarsjóður, verði sameinaðir í nýjan sjóð undir heitinu Nýsköpunarsjóðurinn Kría. Nýsköpunarsjóðnum Kríu er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í umsögnum sem nefndinni bárust var því fagnað að stigin væru skref til að einfalda sjóðakerfið. Með því að sameina krafta nýsköpunarsjóða geti orðið til öflugri fjárfestinga- og styrktarsjóður sem hafi yfir að ráða sveigjanleika til þess að takast á við síbreytilegt umhverfi og fjölbreyttar þarfir.

Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar vill árétta eftirfarandi sérstaklega eftir umfjöllun um hlutverk Nýsköpunarsjóðsins Kríu:

Í 3. mgr. ákvæðisins segir að sjóðnum sé heimilt að fjárfesta í sérhæfðum sjóðum eða sérhæfðum sjóðum EES sem hafa þann tilgang að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Meiri hlutinn bendir á að í skýringum með ákvæðinu segir að notast sé við skilgreiningu á sérhæfðum sjóðum og sérhæfðum EES-sjóðum samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfða sjóða, nr. 45/2020. Í tilfellum beggja sjóðanna er samkvæmt lögunum gerð sú krafa að sjóður hafi starfsleyfi eða sé skráður á Íslandi eða í ríkjum innan EES eða sé þar með skráða starfsstöð. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að gert sé ráð fyrir að í reglugerð verði skilgreindar nánar frekari kröfur til sérhæfðra sjóða, svo sem um hvort og þá hversu miklar tengingar sjóðurinn skuli hafa við Ísland og íslenskt nýsköpunarumhverfi.

Þá fjallaði nefndin um skipan forstjóra Nýsköpunarsjóðsins Kríu og ábending um að óskýrt væri hvort ætlast sé til að forstjóri verði ráðinn eða skipaður. Gert er ráð fyrir að staða forstjóra verði auglýst til umsóknar og stjórn hins nýja sjóðs fari yfir umsóknir og sinni viðtölum og mati á umsækjendum. Í kjölfarið mun stjórnin skila til ráðherra tillögu um hvaða umsækjandi sé hæfastur. Loks komi það í hlut ráðherra að formlega skipa forstjóra og geti hann þá horft til niðurstöðu stjórnarinnar.

Nefndin fjallaði að auki um hvernig hugsanlegum arði af fjárfestingum sjóðsins skuli varið. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að Nýsköpunarsjóðurinn Kría verði rekinn sem sígrænn sjóður en í því felst að sjóðnum beri að nýta hagnað til nýrra fjárfestinga fremur en að greiða út arð til eiganda síns sem er ríkið. Meiri hlutinn áréttar þetta sjónarmið í áliti sínu.

Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til eina breytingu á frumvarpinu þess efnis að stjórnarmenn Nýsköpunarsjóðsins Kríu verði fimm frekar en þrír, líkt og lagt er til í frumvarpinu. Með því verði stjórnin burðugri, til að mynda ef stjórnarmaður forfallast eða er tímabundið vanhæfur. Meiri hlutinn leggur til að hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipi fimm manna stjórn til þriggja ára í senn. Einn stjórnarmaður skuli skipaður samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands, einn samkvæmt tilnefningu þess ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins og tveir án tilnefningar.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar.

Virðulegi forseti. Frumvarp þetta er vel til þess fallið að ná fram markmiði um öflugan fjárfestingarsjóð sem leggur áherslu á stuðning við sprota á fyrstu stigum.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Elín Íris Fanndal, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.