breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafði samþykkt fyrir einhverjum mánuðum síðan að áður en til þingloka kæmi yrðu þessi stuðningsúrræði sem höfðu verið til staðar fyrir fólk og fyrirtæki í Grindavík framlengd. Með þessu frumvarpi er verið að standa við það og við í Viðreisn munum að sjálfsögðu greiða atkvæði með því.
Við erum einnig að sjá að búið er að laga þetta frumvarp talsvert, bæði með því að minnka skilyrði fyrir tekjufallinu úr 40% í 20%, en það getur skipt verulegu máli fyrir mörg fyrirtæki, og síðan eins og hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson nefndi hér áðan skiptir líka verulegu máli hvað varðar afturvirkni að þetta skyldi gilda frá atburðunum 10. nóvember. Vonandi munu fyrirtækin nýta sér það. Við höfum reyndar séð að fyrirtækin hafa ekki verið nógu dugleg að sækja þessa styrki. Við erum í raun og veru bara að horfa á þessi þrjú úrræði núna sem eru launastuðningur, húsnæðisstuðningur og rekstrarstuðningur. Sumt er verið að framlengja fram til áramóta, annað fram í lok ágúst. Allt eru þetta úrræði sem hafa hjálpað til og það gerir enginn lítið úr þeim en þegar farið var að ræða um framlengingu á þessu frumvarpi þá fengum við til móts við efnahags- og viðskiptanefnd fjöldann allan af fólki sem hafði sent inn umsagnir og það er hægt að halda því fram að flestir hafi verið ósáttir við, ekki endilega bara þetta frumvarp heldur hversu stutt það gengi og óskuðu eftir frekari úrræðum heldur en koma fram í frumvarpinu.
Mig langar bara til að nefna það hér að ég veit að hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson beitti sér í meiri hlutanum fyrir því að eitthvað meira fengist í þetta en án árangurs. Ég vil samt þakka honum fyrir að hafa reynt að þoka hlutunum áleiðis. Við erum samt að fara skella hér í lás og það eru atriði sem Grindvíkingar hafa verið að tala um og hafa óskað eftir að fá stuðning með en þeir hafa ekki fengið áheyrn með það. Það er kannski bara rétt, virðulegur forseti, að nefna þessi atriði sem skipta máli af því að kannski eru það atriði sem geta gert það að verkum að sveitarfélagið, fólkið í Grindavík og fyrirtækin nái hreinlega að lifa þetta af.
Sveitarfélagið sjálft í samstarfi við nokkra aðila, m.a. verkalýðsfélag Grindavíkur, lagði til ákveðnar aðgerðir til stuðnings íbúum í Grindavík sem þurftu að flýja heimili sitt og leggja út í veruleg útgjöld vegna þess, m.a. að horft yrði til þess að fella niður stimpilgjald af nýjum samningum við kaup á húsnæði annars staðar. Síðan var einnig lagt til að fólk fengi að nýta séreignarsparnaðinn sinn eins og um fyrstu kaupendur væri að ræða, því að margir eiga enn þá séreignarsparnað þó að unga fólkið í Grindavík hafi verið búið að nýta séreignarsparnaðinn í að kaupa sér hús uppi í Grindavík. Síðan var vakin athygli á hvort hægt væri að nýta hlutdeildarlán fyrir Grindvíkinga — það eru margir mánuðir síðan þessar hugmyndir komu fram og það er ekki hægt að skýla sér á bak við tímaskort til að bregðast við þessum atriðum — en af því varð ekki. Ég held að það séu margir ósáttir við að hafa ekki fengið áheyrn hvað þessa hluti varðar. Ég held nefnilega að þetta séu atriði sem hefðu ekki kostað mikið en hefðu getað hjálpað mikið. Mér finnst rétt að vekja athygli á þessu, þ.e. stimpilgjöldunum, séreignarsparnaðinum og hlutdeildarlánunum, sem hefðu skipt miklu ef við hefðum getað brugðist við í tíma, vegna þess að þessar óskir komu fram fyrir mörgum mánuðum síðan.
Auðvitað má líka nefna Þórkötlu sem hefur verið að kaupa upp húsnæði íbúa í Grindavík sem hafa þá í framhaldi af því getað komið sér fyrir annars staðar og það er þakkarvert að það hafi átt sér stað. En því miður skildum við ákveðna aðila eftir vegna skilyrða sem voru sett um uppkaup, eins og að viðkomandi þyrfti að hafa heimilisfesti í húsnæðinu eða að hann væri með húsnæðið skráð á sína kennitölu. Margir lögaðilar hafa því ekki fengið húsnæði sitt uppkeypt og sitja núna alveg örugglega eftir með sárt ennið og geta sig hvergi hrært og verða jafnvel gjaldþrota í framhaldinu.
Mér þótti líka skrýtið að sjá að dánarbú hefðu farið inn í Þórkötlu. Það átti ekki að heimila lögaðilum að fara inn í Þórkötlu en dánarbúin fengu skyndilega að fljóta með en ekki félagsleg fyrirtæki eins og Búmenn sem áttu raðhús uppi í Grindavík og fólk úr Grindavík var þá með einhvers konar kaupleigu eða keyptan búseturétt í þeim búsetuúrræðum. Hefðu Búmenn t.d. fengið uppkaup hefðu þeir — og þeir sögðu það í efnahags- og viðskiptanefnd — þá hefðu þeir farið í að byggja strax fyrir þessa aðila sem voru í húsnæði Búmanna í Grindavík. Það var ekki hlustað á það og staðan er bara sú að þeir aðilar sem voru í þessum búsetuúrræðum í Grindavík eiga erfitt um vik með að komast inn á almennan markað, síhækkandi almennan markað sem er fyrir utan Grindavík. Þarna hefði verið hægt að hjálpa til með það.
Hv. þingmaður nefndi hér atriði eins og leigustyrk sem atvinnuteymið í Grindavík benti á að gæti hjálpað mörgum fyrirtækjum. Ég átta mig á því að við afturvirknina skapast ákveðið fjármagn sem fólk getur þá nýtt en þrátt fyrir að það fái slíka afturvirkni er ég ekki viss um að það dugi lengi. Það er nefnt að það hefði þurft að koma til sérstakt frumvarp um það en ekki að setja það inn í framlengingarfrumvarpið. Maður spyr: Hvers vegna var það ekki gert? Af hverju var ekki farið í að vinna það? Við höfum nú séð frumvörp unnin á örstuttum tíma til að bregðast við hinu og þessu og maður veltir fyrir sér: Af hverju var ekki farið í að skrifa frumvarp sem næði utan um þá aðila sem þurftu á þessum leigustyrk að halda?
Síðan fengum við upplýsingar um að 2% fyrirtækja geta bara hvergi annars staðar verið heldur en í Grindavík. Þau fá ekki aðstoð núna og heldur ekki þau fyrirtæki sem ekki eru með neina starfsmenn. Og þau fyrirtæki eru til. Það eru fyrirtæki sem eru rekin með verktöku. Það eru verktakar sem sinna þá kannski því sem þarf að sinna í fyrirtækjunum. Ég hef nefnt að Ísfélag Grindavíkur, sem er í eigu annarra fyrirtækja og verktakar hafa séð um þjónustuna, það fær ekki aðstoð í þessu. Þannig að við erum enn þá, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson nefndi hér, að glíma við ákveðna hópa sem ekki hafa fengið úrlausn.
Svo má auðvitað nefna að litlu fyrirtækin í Grindavík sendu mörg hver óskir til Alþingis hreinlega um uppkaup á húsnæði sem stendur ónotað í Grindavík eða jafnvel á svæðum sem heimila ekki að þau séu nýtt. Það er bara bannað að nýta þau. Þau mega ekki nýta þau en þau fá ekki uppkaup. Maður veltir fyrir sér hvers vegna við erum ekki að bregðast við þessu. Við bönnum fólki að nýta húsnæðið sitt en við ætlum ekkert að gera.
Þetta er snúið mál og ég held, virðulegur forseti, að við verðum að nýta sumarið til að skoða fleiri úrræði. Það liggur alveg fyrir að það eru hópar sem fallið hafa á milli skips og bryggju og við þurfum einhvern veginn, með einhverjum hætti að ná utan um það. Að öðru leyti þakka ég fyrir að þetta frumvarp sé að verða að veruleika, að við séum að framlengja þessi stuðningsúrræði sem til staðar voru, og Viðreisn mun greiða atkvæði með því.