154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[18:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fara yfir nefndarálit um frumvarp til fjáraukalaga. Þetta er fjórði fjárauki ársins og fjallar um aðgerðir til styrktar og stuðnings Grindavíkur.

Nefndin fjallaði um málið eftir að því var vísað til hennar 10. júní sl. Það var kynnt af starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Nefndin kallaði ekki eftir umsögnum um málið. Þetta er fjórða frumvarp ársins til fjáraukalaga og lagt fram vegna stuðningsaðgerða við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ í kjölfar eldsumbrota og jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Í frumvarpinu er leitað heimilda til að fjármagna byggingu varnargarða, framlengja stuðningsaðgerðir við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ, til að greiða kostnað við framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar og Afurðasjóð sem er nýtt stuðningsúrræði til að koma til móts við áhættu rekstraraðila við að halda uppi starfsemi í bænum. Í því skyni eru í frumvarpi þessu lagðar til auknar fjárheimildir til viðeigandi málefnasviða og málaflokka vegna fimm tilefna, samtals um 6,3 milljarðar kr.

Í fyrsta lagi er um að ræða 4,5 milljarða kr. fjárheimild vegna framkvæmda við varnargarða til að vernda byggð og mannvirki fyrir hraunflæði. Í öðru lagi er lagt til að framlengja stuðning í formi beinna styrkja til rekstraraðila í Grindavíkurbæ til áramóta og er lagt til að auka fjárheimild um 960 millj. kr. vegna þess. Í þriðja lagi er um að ræða kostnað vegna nýstofnaðs Afurðasjóðs Grindavíkur. Sjóðurinn er nýtt stuðningsúrræði fyrir rekstraraðila vegna þeirrar áhættu sem fylgir því að viðhalda starfsemi í Grindavíkurbæ og eru fjárheimildir auknar um 400 millj. kr. vegna stofnunar hans. Í fjórða lagi eru fjárheimildir auknar um 250 millj. kr. vegna framlengingar sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar. Í fimmta lagi er um að ræða 150 millj. kr. aukningu fjárheimildar til að greiða kostnað vegna framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkurbæjar.

Ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra. Mig langar hins vegar að lesa upp breytingartillögu sem er hér í nefndaráliti, með leyfi forseta:

„Gerð er tillaga um 290 m.kr. hækkun á málaflokki 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi. Það er í samræmi við kostnaðarmat á breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna framhalds á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Hún felur í sér breytingu á skilyrðum rekstrarstyrks til fyrirtækja í Grindavík þar sem miðað er við að styrkur geti verið afturvirkur til þess tíma þegar jarðhræringarnar hófust […]

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Heildarfjárheimild málaflokksins 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi hækki um 290 m.kr.“

Undir þetta nefndarálit skrifar sá sem hér stendur og hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jódís Skúladóttir, Vilhjálmur Árnason og Sigríður Elín Sigurðardóttir.