opinber innkaup.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber innkaup. Í nefndaráliti sem liggur frammi er farið ítarlega yfir umfjöllun nefndarinnar og þær breytingar sem lagðar eru til.
Meiri hlutinn leggur til að málið verði samþykkt með þeim breytingum.
Undir álitið skrifa, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Jódís Skúladóttir, Sigríður Elín Sigurðardóttir og Vilhjálmur Árnason. — Ég hef lokið máli mínu.