umferðarlög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019. Nefndarálitið má einmitt nálgast hér frammi.
Nefndin lagði til breytingar í nefndarálitinu sínu. Þar kom fram að mikilvægt væri að skilgreina enn frekar smáfarartæki og gerir nefndin það í sínu nefndaráliti.
Nefndin fjallaði um heimild til álagningar sekta á grundvelli öndunarprófs skv. 6. gr. frumvarpsins. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að með óbreyttu ákvæði væri óhjákvæmilegt að þeir sem gerast sekir um ölvunarakstursbrot á smáfarartækjum skyldu gangast undir blóðpróf. Því leggur meiri hlutinn til breytingu á b-lið 6. gr. í þeim tilgangi að tryggja að unnt sé að ljúka málum sem varða ölvunarakstursbrot á smáfarartækjum á vettvangi. Með breytingunni orðast ákvæðið með þeim hætti að enginn megi stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum áfengis. Varðandi prófunarmagn vínanda er vísað í nefndarálitið.
Í því samhengi barst nefndinni ábending þess efnis að tryggja ætti að smáfyrirtæki séu skýrlega nefnd í 50. gr. umferðarlaga þar sem kveðið er á um bann við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Í nýjustu útgáfu umferðarlaga eru smáfarartæki ekki nefnd í þeirri grein og eru því ekki lagðar til breytingar á þeirri grein en í ljósi ábendinga leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að tekið sé fram með skýrum hætti að smáfarartæki eigi þar undir og að akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja fari samkvæmt viðeigandi viðurlagaákvæðum umferðarlaga.
Ásamt þessu leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem liggja fyrir í nefndaráliti.
Undir álit nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Oddný G. Harðardóttir og Orri Páll Jóhannsson.
Virðulegi forseti. Í ljósi mikillar fjölgunar slysa í umferðinni sem varðar smáfarartæki og þess óhugnanlega líkamstjóns sem getur orðið við þau þá tel ég frumvarp þetta nauðsynlegt og löngu tímabært. Okkar verkefni hér á Alþingi er að tryggja að löggjöf landsins sé uppfærð í takt við þróun samfélagsins, m.a. með tilliti til ferðavenja. Frumvarp þetta er mikilvægt til að tryggja aukið öryggi og nauðsynlegt regluverk í kringum ferðamáta sem hefur öðlast miklar vinsældir á skömmum tíma. Þrátt fyrir að smáfarartæki séu almennt umhverfisvænn ferðamáti getur hann reynst stórhættulegur ef hann er ekki nýttur á réttan máta. Því er mikilvægt að við tryggjum að reglur varðandi aldurstakmörk, fjölda notenda á sama tíma og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja sé fylgt ásamt öðrum öryggisviðmiðum.