154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði.

909. mál
[19:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði með það að markmiði að styrkja samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins við að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði, ásamt því að styrkja samstarf þeirra sem fara með opinbert eftirlit á vinnumarkaði.

Meðal þess sem lagt er til er að komið verði á laggirnar sérstakri samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Lagt er til að með sérstökum samningi verði komið á fót samstarfsvettvangi opinberra eftirlitsaðila gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði undir forystu Vinnueftirlits ríkisins. Að auki er lagt til að ýmis verkefni Vinnumálastofnunar á sviði eftirlits á vinnumarkaði verði færð til Vinnueftirlitsins auk þess sem heimildir stofnunarinnar til þess að beita viðurlögum verði auknar og skýrðar.

Meiri hlutinn fjallaði um málið og fékk til sín gesti og umsagnir. Nánar má kynna sér það á vef Alþingis þar sem gögnin eru aðgengileg. Meiri hlutinn beinir því til þeirra ráðherra sem samstarfsnefndina skipa að auka samstarf sín á milli í tengslum við vinnu fyrirhugaðrar samstarfsnefndar og leggur jafnframt áherslu á að unnið verði markvisst að áætlun um hvernig tekið skuli á vinnumansali hér á landi.

Meiri hlutinn telur mikilvægt að markvisst og skilvirkt eftirlit með brotastarfsemi á vinnumarkaði sé til staðar og væntir þess að það samstarf eftirlitsaðila á vinnumarkaði sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu geti styrkt enn frekar núverandi eftirlit og auðveldað framkvæmd aðgerða sem ætlað er að taka á skipulagðri brotastarfsemi á vinnumarkaði, þ.m.t. vinnumansali.

Í lögunum er gengið út frá því að við eftirlitið nýti hver og einn eftirlitsaðili þær heimildir sem hann hefur lögum samkvæmt til að hafa eftirlit á vinnumarkaði. Eftirlitsaðila ber í störfum sínum að fara að ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem og ákvæðum annarra laga, eftir því sem við á. Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er því ekki verið að auka við eftirlitsheimildir þeirra opinberu aðila sem fara með eftirlit á vinnumarkaði heldur skyldu til að formbinda reglulegt samráð og samstarf þeirra.

Meiri hlutinn leggur til nokkrar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og hafa ekki efnisleg áhrif en leggur einnig til þá breytingu að við frumvarpið verði bætt ákvæði um skyldu ráðherra til að koma árlega fyrir þingnefnd og gera grein fyrir stöðu aðgerða gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði og tillögu samstarfsnefndar eftir því sem við á. Yrði þingið þar með betur upplýst um stöðu mála.

Undir þetta nefndarálit skrifa sú er hér stendur og hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Óli Björn Kárason. Þá er hv. þm. Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, einnig samþykkur áliti þessu.

Frú forseti. Að auki eru á þskj. 2060 breytingartillögur frá þeirri er hér stendur þar sem lagðar eru til breytingar í tilvísunum sem er að finna í 3. og 7. gr. frumvarpsins. Nauðsynin fyrir breytingum á tilvísunum er til komin vegna breytinga sem verið er að leggja til að gera á umferðarlögum og mælt var fyrir hér áðan og ég vænti að verði samþykktar. Að þessu sögðu þá vonast ég til þess að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér gert grein fyrir.