154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[19:44]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta þingmál markar ákveðin tímamót því að þetta er fyrsta langtímastefnumótunin í málaflokknum og í huga okkar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði mikilvægt skref í þá átt að tryggja húsnæðisöryggi í víðum skilningi. Það eru ýmsar áhugaverðar áherslur og aðgerðir í þessu, m.a. er fjallað um vistvænar byggingar og hvernig draga megi úr kolefnislosun frá byggingum. Við í Vinstri grænum styðjum þetta mál sem og þær breytingartillögur sem meiri hluti nefndarinnar leggur til og vonum að þetta verði samþykkt.