154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
509. mál
Herra forseti. Ég er ekki jafn hrifinn af þessari húsnæðisstefnu og sá þingmaður sem talaði á undan mér. Mér finnst þetta vera svona samsuða af alls konar, talað bæði með og á móti, talað um að koma fólki í séreign og á sama tíma að efla félagslega húsnæðiskerfið. Maður áttar sig ekki alveg á því hvað á að vera í forgangi hjá þessari ríkisstjórn, fyrir utan það að fjármögnun er ekki til staðar. Viðreisn mun sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu.