154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[19:46]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er með mikilli gleði að ég set grænt við þessa húsnæðisstefnu. Málið er mér nokkuð skylt þar sem við höfum unnið að þessu í langan tíma á meðan ég var í innviðaráðuneytinu og mér finnst ákaflega sérkennilegt að sjá að stefna sem er unnin í eins víðtæku samstarfi við mjög marga hagaðila og tekur á nánast öllum þáttum samfélagsins er varðar húsnæðismál fái ekki bara grænt brautargengi í þessum sal. En ég er glaður að fá að ýta á græna takkann.