154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[19:49]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um risastórt og tímabært mál um breytingu á þeim hluta almannatryggingakerfisins sem snýr að örorkulífeyrisþegum. Þetta mun gjörbylta stöðu bæði örorkulífeyrisþega og líka þeirra sem eru á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Við fengum gott og vel ígrundað mál frá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Meiri hluti velferðarnefndar og nefndin öll tók vel utan um málið. Við í Vinstri grænum munum styðja breytingartillögur meiri hlutans, við munum styðja breytingartillögur sameinaðrar velferðarnefndar og við munum styðja breytingartillögur á þingskjali minni hlutans sem koma hér til atkvæða, enda er þetta mikilvægur liður í því að (Forseti hringir.) Alþingi taki með þeirri reisn og þeim sóma sem mikilvægt er um jafn (Forseti hringir.) gríðarlega stórt og mikilvægt mál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á ræðutímann.)