breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Herra forseti. Ég gagnrýndi þetta mál harðlega þegar það var lagt fram á Alþingi og benti á alvarlega ágalla en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrst voru gerðar mjög mikilvægar breytingar á málinu á vettvangi velferðarnefndar. Svo sameinaðist stjórnarandstaðan um ákveðnar lágmarkskröfur, fimm breytingartillögur sem voru settar á oddinn í þinglokaviðræðum. Niðurstaðan er sú að öll velferðarnefnd hefur sammælst um það í framhaldsnefndaráliti að samþykkja bæði tillögur meiri hlutans og þrjár helstu tillögur stjórnarandstöðunnar. Með þessum breytingum hefur frumvarpið, sem var að mörgu leyti mjög gott þegar það var lagt fram, tekið stakkaskiptum til hins betra. Í mínum huga er algerlega hafið yfir allan vafa, þrátt fyrir að það verði áfram ákveðnar brotalamir á örorkulífeyriskerfinu og að þetta mál sé ekki fullkomið, að frá og með 1. september 2025 (Forseti hringir.) munu öryrkjar á Íslandi búa við betra örorkulífeyriskerfi heldur en þeir búa við í dag, (Forseti hringir.) talsvert betra, miklu betra. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál.