154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
864. mál
Virðulegur forseti. Þingflokkur Miðflokksins styður þetta mál og telur það hafa tekið umtalsverðum bótum í meðförum í nefnd. Ég óska þeim sem á það treysta hvað sitt lífsviðurværi eða aðstæður varðar til hamingju með þessa breytingu sem ég held að sé til mikilla bóta hvað varðar stöðu örorkulífeyrisþega. Ég ítreka að þingflokkur Miðflokksins styður málið og telur það hafa batnað umtalsvert í meðförum nefndarinnar.