breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Ég vil leyfa mér að lýsa ánægju með að heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu sé hingað komið til afgreiðslu. Eitt af markmiðum þessa frumvarps er einföldun á kerfinu og sameining greiðsluflokka en um leið að styðja fólk til virkni eftir getu hvers og eins samkvæmt nýju samþættu sérfræðimati. Þá er verið að setja aukið fjármagn inn í kerfið sem ætti að bæta stöðu fólks. Minni hluti velferðarnefndar lagði fram sameiginlegar breytingartillögur í fimm liðum og var meiri hluti velferðarnefndar tilbúinn til þess að bregðast við þeim og koma til móts við þær að miklu leyti. Fyrir það ber að þakka. Viðreisn styður þetta mál heils hugar.