154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[19:54]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er mikill gleðidagur og ég hygg að við eigum öll að vera hreykin af okkur sjálfum. Mér finnst þetta vera dæmi um það hvernig við getum, þrátt fyrir ólíkar skoðanir, þrátt fyrir ólíkar áherslur, að lokum náð saman. Ég ætla að þakka hv. formanni velferðarnefndar alveg sérstaklega fyrir það hvernig hún hélt á málum í þeim efnum. Mér finnst við hafa stækkað við afgreiðslu þessa máls og ég vona að við berum gæfu til þess að vera öll hér samtaka og segja já við þessu frumvarpi, hvert og eitt okkar, vegna þess að þetta er eitt stærsta skref sem hefur verið tekið á síðustu áratugum til að bæta hag öryrkja með jákvæðum hætti þar sem jákvæðir hvatar eru settir inn (Forseti hringir.) og hætt að refsa fólki fyrir að gera tilraun til að bæta sinn hag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)