breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Við í Framsókn erum stolt af þeim breytingum sem þetta mál felur í sér og styðjum það, ásamt þeim breytingum sem velferðarnefndin hefur komið sér saman um. Ég lít á þetta mál sem eitt af stóru málunum sem náðst hefur árangur í með ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknar, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks en jafnframt eitt af þeim málum sem Alþingi getur verið stolt af að hafa allt unnið saman að að koma hingað í dag. Við erum að taka risastórt umbótaskref og bæta verulegu fjármagni inn í kerfið til að umbæturnar geti gengið eftir. En fyrst og fremst verða svo tímamót 1. september 2025 hjá því fólki sem þarf á þessari nýju umgjörð kerfisins að halda í lengri eða skemmri tíma.