breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Áður en við gleymum okkur alveg í húrra- og hallelújahrópum þá vil ég nú samt halda því rækilega til haga að það hvernig til tekst með þetta mál veltur að verulegu leyti á framkvæmdinni og þeim vinnumarkaðsúrræðum sem gripið verður til samhliða þessu. Ég vil líka segja að í þessu samhengi skiptir gríðarlegu máli að Alþingi líti ekki svo á að við séum einhvern veginn að afgreiða þetta og svo taki bara Tryggingastofnun við. Við berum ákveðna ábyrgð, bæði við hér í þessu húsi og sú ríkisstjórn sem nú situr og sú ríkisstjórn sem tekur við af henni og mun fylgja eftir innleiðingunni, við berum ábyrgð á því að þetta heppnist og þessar breytingar nái markmiðum sínum. Ég vil bara brýna fyrir þingheimi að við rísum undir þessu hlutverki.