breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Ég vil taka það fram að við í Flokki fólksins munum styðja allar góðar tillögur í þessu máli, það stendur ekki á því, en við getum ekki skilið hvers vegna í ósköpunum allir fá ekki sömu hækkanir í þessu máli. Sumir fá jú 30.000 kr. hækkanir. Er búið að tryggja það að ári seinna fái þeir ekki skerðingu á þessu? Nei. Það er gjörsamlega óþolandi að við séum að byggja upp kerfi en breytum ekki grundvellinum í því sem er sá að ef þú lætur 10.000 kr. í hendurnar á fólki í þessu kerfi þá máttu þakka fyrir að 7.000 af því fari ekki beint í ríkissjóð aftur og jafnvel meira, jafnvel allt upp í 100% eins og hefur komið fram. Þetta er meingallað kerfi. Við hefðum getað breytt þessu og gert þetta mjög flott. En ég mun styðja allar góðar breytingar í þessu.