154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[20:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég sé að þessi breytingartillaga er felld. Þarna var ég að setja inn hækkun, 23.750 kr., sem var gerð í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og er meira að segja afturvirk frá 1. febrúar en öryrkjar fá greinilega ekki. Og aftur 23.750 sem verður 1. janúar á næsta ári, 2025. Og 47.000 kr. sem allir fá, þar sem er þó ekki verið að mismuna fólki, að sumir fái meira og aðrir fái minna og sumir fái ekki neitt af því að þeir hafa það svo gott, eins og kom fram í umræðu um þetta kerfi í dag. Það er greinilega ekki vilji til þess að öryrkjar fái sömu hækkanir og á almennum vinnumarkaði.