154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
864. mál
Herra forseti. Ég held að ég sé örugglega á hárréttum stað í tillögunni. Hérna er verið að leggja til 25.000 kr. hækkun við hlutaörorkulífeyrisgreiðslur. Það er stórt mál sem verður til þess að tryggja betur kjör þeirra sem í litlu starfshlutfalli hafa lág laun. Það skiptir auðvitað máli að búa þannig um hnútana að fólk í þeim aðstæðum hafi trygga afkomu. Það er til þess að þétta enn betur það velferðarkerfi sem við höfum og erum að bæta með þessu frumvarpi.