154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

864. mál
[20:11]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér erum við í Flokki fólksins bara að biðja um að þeir sem eru á virknistyrk, að hann falli ekki niður, að hann verði ótímabundin meðan á atvinnuleit stendur. Ég sé að það er enginn vilji fyrir því. Það sýnir bara hug fólks til þessa.