breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Virðulegur forseti. Við sjáum það á töflunni að það er ekki vilji til þess að um næstu áramót verði uppreiknað til öryrkja þannig að þeir fái þessar bætur greiddar og uppreiknaðar. Það er nefnilega stórfurðulegt að um hver áramót er búinn til pottur og hrært í hann alls konar vísitölusúpum og alls konar öðru, bætt í launaþróun og alls konar, en útkoman verður alltaf sú að þessi hópur fær helmingi minna heldur en hann á að fá. Þarna erum við að reyna að tryggja að svona leik sé hætt. En það er greinilega vilji þessarar ríkisstjórnar að halda áfram að leika þennan ljóta leik gagnvart þessu veika fólki.