154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[20:24]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við Píratar greiðum atkvæði gegn þessu máli. Við teljum að ekki hafi verið sýnt fram á þörfina á heimildum til að fylgjast með almennum borgurum, sem hafa ekkert sér til sakar unnið né eru grunaðir um slíkt, án dómsúrskurðar eða annarrar aðkomu óháðs aðila. Við teljum að þær breytingar sem gerðar eru með frumvarpinu rýri traust almennings til lögreglu, séu ekki til bóta fyrir hennar störf né fyrir okkar samfélag. Við höfum áhyggjur af því að upplýsingar um tilgang og áhrif þessara breytinga séu óljósar og misvísandi.

Ég vek athygli á frávísunartillögu sem við höfum lagt fram þar sem við teljum að hægt sé að vinna málið betur. Við teljum að hægt sé að hugsa þetta betur og leggjum til að það verði gert. Til vara, þar sem samstaða virðist vera um þessar breytingar hér í þingsal, þá höfum við lagt fram breytingartillögur til lágmarksskaðaminnkunar á málinu þar sem við m.a. leggjum til að dómsúrskurð þurfi til að framfylgja þessum heimildum.