154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
lögreglulög.
707. mál
Virðulegi forseti. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál sem hefur verið kallað lengi eftir af hálfu lögreglu. Þegar ég var í allsherjar- og menntamálanefnd kom það fyrir þingið og náði því miður ekki fram að ganga. En það hefur verið vandað til verka og það hefur verið gætt að ýmsu. Ég fagna því að við séum að ná lendingu í þessu mikilvæga máli og að sjálfsögðu mun Framsókn styðja það mál.