154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[20:27]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þingflokkur Viðreisnar styður þetta mál. Það er rétt sem hér hefur komið fram að það er búið að gera ýmsar atrennur að því að koma þessu í gegn. Það er líka rétt sem hér hefur komið fram að þetta snýst auðvitað um öryggi okkar borgaranna og þetta snýst um að lögregla hafi þá auknar heimildir til að fylgjast með fólki. En slíkum auknum heimildum verður auðvitað að fylgja viðhlítandi eftirlit með að þar sé rétt farið með og að allt sé í samræmi við það sem við best viljum hafa í þeim efnum. Ég hef almennt ekki verið sérstaklega hrifinn af því þegar stjórnarflokkarnir eru að takast á um mál, það kemur eiginlega ekkert mikið gott út úr því, en átökin í þessu máli hafa þó a.m.k. leitt til þess að gott mál hefur batnað talsvert mikið. Viðreisn styður þetta mál heils hugar.