lögreglulög.
Virðulegi forseti. Við samþykkjum þessi lög sem eru til þess fallin að auka heimildir lögreglu til þess að koma í veg fyrir afbrot, tryggja almannaöryggi og standa gegn skipulagðri brotastarfsemi. Að sjálfsögðu vil ég taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa tekið til máls um þær góðu breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu. Við unnum öll saman vel að því. Vil ég ítreka þær áréttingar sem ég hafði hér áðan í ræðu um mikilvægi þess að fjármagn fylgi með þeim eftirlitsheimildum ríkissaksóknara sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi.