154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

lögreglulög.

707. mál
[20:35]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Hér var um að ræða þær breytingar í þessu frumvarpi sem raunverulega voru til bóta og sneru að því að efla nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Það átti að fjölga í nefndinni og það átti að gera henni að skila skýrslum til Alþingis. Meiri hlutinn leggur til að fella þessi ákvæði brott úr frumvarpinu, algerlega án skýringa. Ég tel það mjög miður. Ég tel að þetta hafi verið mjög til bóta og í takti við það sem hefur verið sagt að sé tilgangur frumvarpsins, sem er að efla nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Þetta er mjög miður og við höfnum þessari breytingu.