breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál. Það eru samt mikil vonbrigði að ekki hafi verið gengið lengra í stuðningi við þá Grindvíkinga sem sannarlega þurfa á stuðningi að halda eftir náttúruhamfarirnar. Það er þannig, forseti, að það er ákveðinn hópur Grindvíkinga sem er bara í þannig stöðu að ekkert af þeim úrræðum sem við höfum samþykkt hér í þessum sal gagnast þeim. Ég treysti því og skora á framkvæmdarvaldið að það verði sest yfir þau mál og þegar við komum saman í haust þá getum við afgreitt stuðning við alla Grindvíkinga. Það á enginn að vera skilinn eftir þegar fólk missir aleigu sína eða getur ekki nýtt eigur sínar vegna náttúruhamfara. Við eigum að vera nógu stór til þess að taka utan um alla sem þurfa að glíma við þann vanda.